Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Spáum fyrir um úrslitin (35 álit)

í Söngvakeppnir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Jæja, er ekki tími til að fara að tala um eitthvað annað en Jónsa? Á eurovision.tv (undir multimedia) er hægt að horfa á öll myndböndin, svo það er best að kynna sér lögin fyrir keppnina. Eftir að hafa hlustað á allnokkur finnast mér Úkraína, Serbía&Svarfjalland, Svíþjóð og Spánn vera með skemmtilegustu lögin. Mér finnst samt frekar leiðinleg að það séu engin rokklög né hljómsvetir með á þessu ári, né heldur nein grínlög, jahh bara eiginlega ekki neitt sem sker sig upp úr. Flest lögin eru...

Útsala í Skífunni! (38 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Jæja. Þetta er kannski ágætis korkamatur og gæti jafnvel talist sem auglýsing en þetta gæti samt vakið einhverjar umræður svo ég sendi þetta inn sem grein. Ég fór í Skífuna í síðustu viku, og átti nú ekki von á neinu sérstöku frá þessarri vanalegu okurbúð. En hún kom mér nú ágætlega á óvart í þetta skiptið. Ég sá nú reyndar “ÚTSALA” merkið í glugganum en það þýðir oftast þar að verið er að selja plöturnar sem floppuðu á jólunum, og bjóst við stöndum af Rottweiler og Svölu Björgvins. En...

"Earth From Above" sýningin komin til Íslands (9 álit)

í Ljósmyndun fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég fór í mínu mesta sakleysi niður í bæ í dag og átti mér einskis óvænts von. Sólin skein, sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur við höfnina og öll útikaffihús yfirfull. En Austurvöllur kom mér heldur betur á óvart. Var búið að planta þar sýningunni “Earth From Above”. Ég hafði séð þessa sýningu áður í Kaupmannahöfn og hrifist af henni þar. Myndirnar eru allar eftir franska ljósmyndarann Yann Arthus-Bertrand. Hann hefur í gegnum tíðina tekið m.a. myndir af dýrum og fólki. Síðustu árum...

Að "eiga sér líf" (20 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég veit ekki hvort þetta á heima inná “heimspeki”, en ég vissi ekki hvert annað ég átti að senda þetta. Í þessari grein ætla ég aðallega að pirrast yfir ákveðnu orðatiltæki sem er mikið notað en fer nokkuð í taugarnar á mér. Þegar einhver gerir eitthvað sem er ekki mjög vinsælt er oft sagt “vá, þessi á sér nú ekkert líf”. Þetta er kannski mest notað meðal unglinga og ég nota þetta oft sjálf án þess að hugsa. Fólk sem gerir sérkennilega hluti eins og að raða dómínókubbum alla daga eða læra...

Brýrnar í Madisonsýslu (13 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég las þessa bók nýlega, og varð algjörlega hugfangin, og ég bara varð að skrifa grein um hana. Brýrnar í Madísonsýslu (The Bridges of Madison County) eftir Robert James Waller segir frá stuttu en afdrifaríku ástarsambandi Robert Kincaid og Francescu Johnson. Sagan gerist árið 1965 og á árunum eftir það. Hún er fertug, gift bóndakona í landbúnaðarfylkinu Iowa en hann flakkandi, fimmtugur ljósmyndari fyrir National Geographic. Þau kynnast þegar hann biður hana að vísa sér á brú sem hann ætlar...

Plötukaup á klakanum (55 álit)

í Rokk fyrir 22 árum
Nýlega hefur ógnvænleg þróun átt sér stað. Músik og Myndir er horfið, og Japis að því sem virðist líka. Það eina sem stendur eftir er Skífan. Fyrir nokkrum árum var ástandið miklu betra. Þegar maður ætlaði að kaupa geisladiska var annaðhvort hægt að fara í Skífuna, Japis, MM eða stóru tónlistarverslunina í Kringlunni sem breytti sífellt um nafn (Virgin, Samtónlist o.fl.). Af þessu er aðeins Skífan eftir, og hún er líka minni en áður var. Verslunin hefur svosem stækkað, en í staðinn fyrir að...

The Hitchhiker's Guide to the Galaxy (55 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Rétt áðan kláraði ég að lesa bókina “The Ultimate Hitchhiker's Guide” og ég held ég hafi sjaldan hlegið jafn mikið. Þessi bók er skyldulesning og þess vegna hef ég ákveðið að skrifa smá grein um hana. Bókin er eftir bretann Douglas Adams, og er þetta frægasta verk hans, þótt hann hafi líka skrifað aðrar smásögur. Þessi bók byrjaði þó sem útvarpsleikrit held ég, en varð síðan að bók, sjónvarpsseríu, tölvuleik og einhverju fleiru mögulegu… Aðalsöguhetjurnar eru: Arthur Dent: ósköp venjulegur...

Uppáhalds búðin þín? (56 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Mig minnir að svona könnun hafi ekki verið gerð nýlega, þannig að ég vil spyrja: Hver er uppáhalds fatabúðin ykkar? Gaman væri, ef fólk myndi birta aldur og kyn með, og helst einhvern smá rökstuðning. Uppáhaldsbúðin mín (16 kvk) yrði sennilegast TopShop, því mér finnast fötin þar eitthvað svo lífleg og skemmtileg, og auk þess eru þau frekar ódýr. En ég versla líka oft í Mótor og Vero Moda. Svo líst mér vel á þessa Mango verslun sem komin er í Smáralind. Og ef ég er erlendis verð ég að kíkja...

Flugslysamyndir! (7 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Eftir að hafa horft á myndina “Turbulence” á Skjá einum í gær ákváð ég að skrifa hér smá grein um flugslysamyndir, því þær eru nú allar svo stórskemmtilegar! Þar sem ég hef séð aðeins 4-5 þannig myndir er ég sennilegast enginn sérfræðingur í flugslysamyndum, en ég held ég geti samt tekið saman nokkur atriði. Myndirnar snúast um eina flugferð, og er vettvangurinn þar af leiðandi flugvél og oft líka einhver flugturn. Aðalplottið er: 1. einhver að ræna flugvélinni 2. sprengja um borð 3. óveður...

Hörð kápa eða kilja? (38 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Mig langar að vita, hvort eruði frekar fyrir bækur í hörðum kápum eða kiljur? Á Íslandi eru langflestar bækur gefnar út í hörðum kápum. Svo kannski seinna, ef þær verða vinsælar, eru þær gefnar út í kiljum (t.d. Englar Alheimsins). En flestar bækur sem koma út í jólabókaflóðinu eru harðspjalda, og oft mjög vel gefnar út. Það þykir “fínt” að fá góða bók í jólagjöf og oft sóma þær sér vel í hillu, hvort sem þær eru lesnar eða ekki. Íslendingar álíta sig mikla bókaþjóð og eru oft stoltir af...

HM í fótbolta 2002 (1 álit)

í Íþróttir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Jæja, þá er loksins orðið ljóst hvaða lið munu keppa á HM í fótbolta 2002. Þau eru: Frá Asíu: Japan (sem heimamenn) Suður-Kórea (sem heimamenn) Kína Sádi-Arabía Frá Afríku: Túnis Suður-Afríka Kamerún Senegal Nígería Frá Norður- og Mið-Ameríku: Bandaríkin Mexíkó Kosta Ríka Frá Suður-Ameríku: Brasilía (rétt sluppu!) Argentína Paragvæ Ekvador Úrúgvæ (með því að vinna Ástralíu 3:0 núna um helgina) Frá Evrópu: Frakkland (sem vinningshafar síðustu keppni) Pólland Írland Svíþjóð Spánn Rússland...

HM í fótbolta 2002 (0 álit)

í Íþróttir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Jæja, nú er komin á hreint flest liðin sem taka þátt í HM keppninni 2002. Þau eru: Frá Asíu: Japan (sem gestgjafar) Suður-Kórea (sem gestgjafar) Kína Sádi-Arabía Frá Afríku: Suður-Afríka Kamerún Senegal Túnis Nígería Frá Norður- og Mið-Ameríku: Bandaríkin Mexíkó Kosta-Ríka Frá Suður Ameríku: Argentína Brasilía Paragvæ Ekvador Frá Evrópu: Frakkland (sem vinningshafi) Pólland Slóvenía Þýskaland England Svíþjóð Spánn Rússland Portúgal Danmörk Króatía Ítalía Tyrkland Belgía Írland Enn eiga eftir...

Af hverju eru þið á móti páfanum?! (13 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þessi grein átti upphaflega að vera svar við korki eftir malkav, en hún lengdist svo ég sendi hana hér. Af hverju í fjandanum eruð þið á móti páfanum?! Ég er trúleysingi, hef aldrei verið í neinu trúfélagi og fermdist ekki, þrátt fyrir allan þrýstinginn. En hvernig er hægt að vera á móti páfanum?! Hann hefur einróma barist fyrir friði, og komið á mörgum breytingum í kirkjunni. Hann hefur ferðast meira en allir aðrir páfar samanlagt, og þá bæði til kristinna landa og annarra, og alltaf virt...

Mesti snilldarleikur allra tíma!!! (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum
Ég fann hvar er hægt að downloada mestu snilld allra tíma, Skyroads! Þessi leikur er svooo frábær, ef þú byrjar geturu ekki hætt! Endilega downoloadið Skyroads af http://www.bluemoon.ee/history/skyroads/ og líka Skyroads Xmas, enda eru þeir báðir fræbarir. Það tekur bara u.þ.b. 5 mínútur svo að það er vert að prófa. Gleðilega páska og góða skemmtun! sjoefn7 Ps. Ef hljóðið virkar ekki, prófið þá að fara á leikinn gegnum MS-DOS.

Survivor 1 vs. Survivor 2 og aðrar pælingar (8 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 23 árum
Jæja, loksins fengum við þá Survivor áhugamálið. Ég var búin að bíða lengi eftir því og orðin létt pirruð að áhugamál eins og “Handbolti” kæmu inn á undan, en þetta hafðist þó að lokum. Ég bókstaflega dýrkaði Survivor1, og beið því óþreyjufull eftir Survivor2, en ég get ekki sagt annað en að ég hafi því miður orðið fyrir vonbrigðum. Það er ljóst, að fyrsta Survivor-syrpan var sú sem lagði línurnar og þær næstu eiga bara eftir að verða eftirhermur, en ég vonaðist samt eftir einhverju betru....

Næturlestin (1 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 1 mánuði
Næturlestin Hitinn var að verða óbærilegur. Hanna greip af öflu afli í handafangið og rykkti glugganum niður. Hann opnaðist að hálfu og svalt næturloftið streymdi inn. Hanna stakk höfðinu út um gluggann (sem maður á víst ekki að gera, en hvað með það) og fann vindinn á andlitinu og hávaðann í eyrunum. Henni leið vel. Alveg ótrúlega vel. Hún hafði ekki fundið þessa sælutilfinningu í mörg ár, kannski jafnvel ekki síðan hún var krakki. En þá var nú allt svo létt. Maður sat bara í sandkassanum...

Nýja tískan er ljót (52 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég fór í Kringluna í gær, og guð minn góður, hvað fötin voru orðin ljót! Ég meina það, einhver hræðileg 70-80's tíska er komin aftur, tíska sem ætti helst að vera gleymd og grafin! Sniðin er orðin klikkuð, litasamsetningin í helsta máta fáránleg og allt þetta toppa fáránlegir fylgihlutir. Ég er ekki á móti litum, mér finnst fínt að fá smá liti eftir þetta gráa tímabil sem varaði í nokkur ár, en ég meina það er samt ennþá hægt að hafa fötin einföld! Já og eitt orð um skóna. Hvaða fífli datt í...

Skipta fötin máli? (29 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér finnst það alveg hungleiðinlegt, en á Íslandi eru allir klæddir eins!!! Það finnst reyndar lítill hópur af fríkum, en annars ef þú ferð í Kringluna þá tekuru eftir því að helmingurinn af fólkinu þar er í eins skóm og þú! Mér finnst þetta gersamlega óþólandi. Í útlöndum eru t.d. alltaf margar bylgjur í gangi í einu, þú sérð skoppara, hippa, rokkara, píkupoppsgellur, alvarlega businessmen og pönkara saman í einni kös. Tískan þar sýnir oft á hvaða tónlist þú hlustar, úr hvaða stétt þú ert...

Framtíðarborgin Reykjavík - Skólar (5 álit)

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Í dag fékk ég inn um lúguna ritið “Framtíðarborgin Reykjavík”. Ef þið hafið ekki fengið það mun það sennilega kom bráðlega. Í því stóð svo sem allt ágætt, en tillögur um skólana voru hræðilegar. Meðal þess sem ég las var: Skólaskyldan mun lengjast, fyrst í tilraunaskyni, trúlega fyrst um eitt ár upp í framhaldsskólann, síðar eitt ár niður í leikskólann. Skóladagurinn mun senn lengjast, einkum hjá yngri börnum. Vinna á gegn aukinni stéttaskiptingu með því að lengja skóladaginn og að...

án titils (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hann vildi finna hamingjuna hann beið heima en ekki kom hamingjan hann fór til Spánar Ástralíu Indlands en ekki var hamingjan þar hann keypti bækur fór í háskóla en ekki var hamingjan þar hún beið hans í litlu sjávarþorpi í Rússlandi

Álit útlendings á útlendigaumræðunni! (27 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég reyndi að setja þetta inní útlendingaumræðuna, en síðan opnasðist bara alltaf á forsíðunni þegar ég setti á “svara” svo ég set þetta bara hér ;) Ok, er kannski ekki kominn tími til að útlendingur segi eitthvað í umræðunni?!? Ég er pólsk stelpa og hef búið á Íslandi í 11 ár. 11 ár, semsagt löngu áður en allir pólsku verkamennirnir fóru að koma til Vestfjarða. Foreldrar mínir luku bæði háskóla í Póllandi og áttu vinnu þar, en vildu prófa eitthvað nýtt svo þau fluttu hingað. Pabbi minn...

Hræðilegt ljóð! (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ást er föstum áþekk tind, ást er veik sem bóla, ást er fædd og alin blind ást sér gengum hóla. Steingrímur Thorarensen Þetta ljóð fann ég í einni kennslubók. En sá hryllingur! “Ást er veik sem bóla”! Getur einhver bent mér á eitthvað jákvætt í þessu ljóði? Ef ég hefði samið þetta myndi ég ekki þora að sýna neinum þetta hallæri! Hvað er að fólki?! sjoefn7
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok