Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Er uppselt á Kraftwerk? (2 álit)

í Danstónlist fyrir 20 árum
Mér líður soldið fáránlega að fara niður í Skífu að spyrja ef miðarnir eru löngu búnir…

"Money belt" á Íslandi? (1 álit)

í Ferðalög fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ég vona að einhver kíkí hingað inn… Allavegana, veit einhver hvar er hægt að kaupa svona “money belt” á Íslandi? Mig minnir reyndar að ég hafi séð einhver í bókabúðinni Mjódd en þau voru samt of stór eða ætluð strákum.

Útsendingar frá EM? (3 álit)

í Stórmót fyrir 20 árum, 1 mánuði
Jæja, ég vona að einhver muni lesa þetta hérna… hvaða sjónvarpstöð mun sýna frá EM 2004? Plís segið Sjónvarpið…

Hversu mikið erum við á eftir Ameríku? (4 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hvað er mikil seinkun á þáttunum hér? Er óhætt að fara á opinberu heimasíðuna?

Úrslit Gettu Betur? (1 álit)

í Skóli fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Gæti einhver verið svo vænn að pósta úrslitum Gettu Betur hingað inn? Ég veit bara að MR, MH, Versló og Borgó eru komin áfram.

Spoiler - mómentið í fjallinu (4 álit)

í Tolkien fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Jæja, bara smá spurning fór það ekki í taugarnar á neinum öðrum en mér hvernig endalok hringsins voru gerð? Í bókinni: Frodo bregst á ögurstundu, og gerir sjálfan sig að valdhafa hringsins. Gollum ræðst á hann og bítur fingur Frodos af með hringnum, fer að dansa um og dettur í fjallið. Í myndinni: Eins að augnablikinu þegar Gollum bítur hringinn af. Hér ræðst Frodo á hann, þeir berjast á barminum, Gollum dettur niður og dregur svo Frodo með sér, sem er bjargað á “dramatískan” hátt af Sam....

Þjóðkirkjukönnun! (10 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ehh… við höfum val í hvaða trúfélag (eða HÍ) peningarnir okkar fara, bara minnsta mál að fara niður á Hagstofu og breyta því!

Bob Dylan aðdáendur! (6 álit)

í Gullöldin fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég er að spá að kaupa mér einhverja(r) plötu(r) með Bob Dylan, hvar á ég að byrja? Ég á aðeins safnplötuna “Best of…” og þar finnast mér gömlu lögin best, þessi með harmonikkunni og þjóðfélagsáróðrinum. Ég vil frekar eiga fáa diska en góða en ég veit ekki alveg hvað er svona “must”, þar sem allmusic.com gefur öllum gömli diskunum fimm stjörnur. Hvaða plata nær “sixtís” uppreisnarandanum best, og væri góð í plötusafnið?

könnunin... (0 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 20 árum, 5 mánuðum
ehh… hvernig væri að hafa svarið “nei”?

Kúbanska? (2 álit)

í Jazz og blús fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Veit einhver eitthvað meira um hljómsveitina Kúbanska? Komu að spila í MH um daginn, og mér leist bara mjög vel á þessa tóna… Það er samt EKKERT um þá á netinu, og ég er ekki alveg til í að eyða 2000 kr. í hljómsveit sem ég veit ekkert um og hef aðeins heyrt í smástund.

Knocking on Heavens Door könnun (0 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þetta lag var nú líka mjög vinsælt í útgáfu Eric Clapton! Hvernig má gleyma því?!

Plaköt eða myndir á veggi? (0 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hvar get ég get einhver falleg plaköt á veggina mína?

Kazaa? Eða ekki? (12 álit)

í Hugi fyrir 21 árum, 5 mánuðum
OK ég veit að svona spurningar eru alltaf að koma… Síðan napster féll hef ég notað Kazaa til að downloada músík. En núna er ég komin með nýja tölvu og ekki viss hvort ég eigi að ná í það forrit aftur. Mér fannst Kazaa nefnilega oft frjósa tölvuna og líka fylgdi svo mikið af bulli með því. En hafið þið einhverjar hugmyndir?

Nordjobb?? (1 álit)

í Ferðalög fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver hér reynslu af þessu?

Nordjobb?? (12 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver þarna úti reynslu af þessu?

ástarsögur? (3 álit)

í Bækur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
bendið mér nú á einhverjar fallegar ástarsögur, er í stuði til að lesa einhverjar svoleiðis :) ekki eitthvað svona rauða-serían, en eitthvað fallegt og kannski smá djúpt.

Hvar get ég keypt ruggustól?! (2 álit)

í Heimilið fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Hefur einhver hugmynd hvar ég get keypt ruggustól? Nýjan eða notaðan?

Maskari??? (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Hvaða ódýra og góða maskara getiði mælt með? Hann þyrfti helst að vera líka til í brúnu, svartur maski fer mér alveg hræðilega. Ég var að spá að kaupa einhvern frá Nivea, þeir eru mjög ódýrir (ég er mjööög fátækur námsmaður), hefur einhver reynslu af þeim? sjoefn7

Fatabúðir í Kaupmannahöfn? (6 álit)

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég er að fara til Køben eftir nokkra daga, hvaða flottu búðum getiði mælt með? Ég er 17 ára, og versla oftast í Topshop, Mango ofl. Inn á milli kaupi ég dáldið fríkuð eða notuð föt (keypti æðislega skyrtu á 500kr. í Fantasíu í dag!). Jæja, endilega hjálpið mér, ég mun ekki hafa mikinn tíma.

Þarf skjaldamerki! (4 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 11 mánuðum
OK, ég veit að þetta hljómar kannski eilítið furðulega… En einn maður frá Rússlandi hafði nýlega samband við mig, hann safnar skjaldamerkjum frá ýmsum löndum, og á nú þegar 48 skjaldamerki. Þá er hann að meina svona járnplötur með skjaldamerkinu á sem er fest t.d. á herbúninga, lögreglubúninga o.fl. Veit nokkur hvort eitthvað svona sé notað á Íslandi (við erum nú ekki með her, ég veit ekki hvort löggan notar þetta) og hvar væri kannski hægt að kaupa/fá það.

Hvaða sjónvarpsstöðvar... (3 álit)

í Stórmót fyrir 21 árum, 11 mánuðum
munu sýna HM? Ég er því miður hvorki með Stöð2 né Sýn, og get ekki fengið það í bráðinn. En ég er með gervihnattadisk sem nær fullt af þýskum, ítölskum og aröbskum stöðvum. Veit einhver hvort hið ítalska RAI eða einhver þýsk stöð mun sýna keppnina?

Linsur! Hjálp! (5 álit)

í Heilsa fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hvernig veit maður ef maður hefur sett linsuna öfugt í augað? Sér maður þá illa eða hvað? sjoefn7

Sígildar bækur? (11 álit)

í Bækur fyrir 22 árum
Ég ákváð um daginn að ég þyrfti að lesa einhverjar, klassískar bækur. Las í gær “Morgunverður á Tiffany's”, svo fyrir stuttu “Dagbók Bridget Jones's” (ókei kannski ekki klassík, en samt…) og var að byrja áðan á “Dagbók Anne Frank”. Eru einhverjar bækur sem ykkur koma í hugann sem ég ætti að lesa? Og þá er ég sérstaklega að tala um erlendar.

Jú víst er það til! (4 álit)

í Hugi fyrir 22 árum, 1 mánuði
Farið inn á “ýmislegt”, þar er það stillt sem áhugamál vikunnar.

miðasala á strokes? (4 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 1 mánuði
hvenær byrjar miðasalam á strokes? og hvað kostar miðinn?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok