Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hress
hress Notandi frá fornöld Karlmaður
5.602 stig

Milan stefna MJÖG hátt (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Kakha Kaladze, varnarmaður AC Milan, segir að forráðamenn AC Milan ætli sér stóra hluti á leikmannamarkaðinum næsta sumar. Kaladze segir að efstir á óskalista Milan séu Rivaldo, Mario Jardel og Rui Costa. Orðrómur hefur verið í gangi um að Barcelona ætli að selja Rivaldo í sumar og kaupin á Jouan Roman Riquelme í gær kynda enn frekar undir þann orðróm þar sem Riquelme spilar sömu stöðu og Rivaldo. Jardel og Rui Costa eru báðir mjög ósáttir hjá sínum félögum og verða vafalítið til sölu næsta...

Wenger verður áfram hjá Arsenal (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Arsene Wenger hafnaði næstum ómótstæðilegu tilboði Barcelona um að taka við stjórn liðsins næsta sumar. Hann segist ætla að standa við samning sinn við Arsenal sem rennur út 2002. Joan Gaspart, forseti Barcelona, reyndi einnig að fá Fabio Capello til Barcelona, en Capello vildi ekki bíða og því endurnýjaði hann samninginn við Roma. Það má búast við því að Börsungar snúi sér nú að Hector Cuper, þjálfara Valencia, en hann hefur lýst því yfir að hann muni að öllum líkindum ekki endurnýja...

Southampton búnir að ráða framkvæmdastjóra (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Southampton hafa ráðið Stuart Gray sem framkvæmdastjóra félagsins út leiktíðina. Ef hann stendur sig vel í þeim leikjum sem eftir eru er að aldrei að vita með framhaldið. Gray var meðlimur í þjálfaraliði Hoddle en hann neitaði að fara með honum til Spurs og því hafa forráðamenn Saints ákveðið að setja hann við stjórnvölinn.

Cassano með stjörnustæla (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Antonio Cassano gengur illa höndla þá miklu athygli sem hann hefur fengið eftir að hann skrifaði undir samning við Roma. Hann lenti í rifrildi við þjálfara ítalska U-21 árs liðsins um daginn þar sem hann taldi sig eiga áskrift að sæti í byrjunarliðinu og rauk því af æfingunni. Núna réðst hann að myndatökumanni fyrir utan heimili sitt. Einhverjir grínarar sem sjá um sjónvarpsþátt á Ítalíu komu heim til hans og buðu honum ost og það átti að vera alveg rosalega fyndið, en Cassano fannst þetta...

Taylor hættir eftir tímabilið (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Framkvæmdastjóri Watford , Graham Taylor, mun láta af störfum hjá félaginu í lok þessa tímabils. Taylor segir að hann hafi náð þeim markmiðum sem hann setti sér er hann kom aftur til félagsins 1996. “Þegar ég kom til liðsins setti ég upp fimm ára áætlun fyrir félagið, með hjálp margra hafa okkar markmið tekist” sagði Taylor á blaðamannafundi. Forráðamenn Watford þökkuðu Taylor hjartanlega fyrir hans framlag til félagsins og þótt það væri vont að missa hann þá virtu þeir ákvörðun hans. Þá er...

Júggi hjá ÍBV (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Júgóslavinn Alexander Ilic (30) spilaði með Eyjamönnum á miðvikudag í deildarbikarnum. Aðeins einum degi frá því hann kom til landsins. Ferðalagið virtist þó ekki sitja í honum því kappinn gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk Eyjamanna í 3-3 jafntefli gegn ÍR. Hann mun fara með Eyjamönnum í æfingaferð til Spánar í byrjun apríl og að henni lokinni verður tekinn ákvörðun um það hvort gerður verði samningur við kappann. Ef eitthvað er að marka frammistöðu hans gegn ÍR gætu Eyjamenn...

Formúlan vinsælli en fótbolti í Þýskalandi (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 1 mánuði
Samkvæmt niðurstöðum markaðsrannsóknarstofnunar í Köln í Þýskalandi nýtur Formúla-1 meiri vinsælda þar í landi en aðrar íþróttir. Samkvæmt athugunum rannsóknarstofnunarinnar, ‘Sport und Markt’, setja 71% Þjóðverja Formúlu-1 í fyrsta sæti en 70% fótbolta og 68% sögðu ólympíuleikina í Sydney hafa verið íþróttakeppni ársins í fyrra. Að sögn stofnunarinnar var vinsældaröðin þveröfug á Ítalíu. Þar settu 80% Sydneyleikana í fyrsta sæti, 65% töldu fótbolta íþrótt númer eitt en 62% formúluna....

Bierhoff ekki fyrirliði (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Rudi Voller setti fyrirliða þýska landsliðsins, Oliver Bierhoff, á varamannabekkinn í leiknum gegn Grikkjum. Bierhoff hefur legið undir mikilli gagnrýni og þótti arfaslakur í leiknum gegn Albaníu um helgina þar sem hann var tekin út af í hálfleik. Almennt er talið að Bierhoff hafi spilað sinn síðasta landsleik. Það er Carsten Jancker sem tekur stöðu hans í fremstu víglínu, og fyrirliðabandið fær Oliver Kahn. www.kasmir.hugi.is/hress

100% árangur hjá Eriksson (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Englendingar unnu útileikinn gegn Albönum 1-3 í undankeppni HM. Sol Campbell meiddist eftir hálftíma leik og inná kom Wes Brown sem hefur komið á óvart í vörn Man.Utd í vetur. Þrátt fyrir nokkrar ágætar tilraunir kom fyrsta mark enska liðsins ekki fyrr en eftir 74.mín og var þar að verki Michael Owen, en hann er að fara að fá í hendurnar nýjan samning frá Liverpool. Andy Cole átti síðan undirbúning að marki sem félagi hans hjá United, Scholes, skoraði. Albanir náðu að minnka muninn en aðeins...

Vangaveltur í ítalska boltanum (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Juan Sebastian Veron vill hann komast í burtu frá Ítalíu. Hann hefur verið í réttarhöldum í vetur vegna falsaðs vegabréfs og lítur það mál frekar illa út fyrir hann. Ef hann tapar því er ekkert víst að hann fái að spila áfram í Evrópu. Hann er þó búinn að fá nóg af ágangi ítalskra fjölmiðla vegna málsins og vill komast til Spánar. — Danski landsliðsmaðurinn Thomas Helveg gæti verið á förum frá Milan næsta sumar. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum og er talið að ekki sé mikill áhugi meðal...

Greening skorar fyrir U21 (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Enska U-21 árs landsliðið lögðu Albaníu U21 að velli, 0-1. Enska liðið var mun sterkara í leiknum og gefa lokatölurnar ekki rétta mynd af gangi leiksins þar sem Englendingar klúðruðu fjölda færa. Sigurmarkið skoraði Jonathan Greening, Man. Utd., úr vítaspyrnu á 69. mín. En Greening er víst til sölu hjá United.

Hoddle á fund hjá Spurs (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Glenn Hoddle ætlar að hitta forráðamenn Tottenham seinni partinn í dag. Ekki var búist við því að forráðamenn Tottenham myndu ræða við Hoddle fyrr en eftir tímabilið en stjórnarformaður Southampton gaf forráðamönnum leyfi til að ræða við Hoddle í dag. Ruud Gullit var í viðtali við sjónvarpsstöð í Hollandi og sagði hann hefði hafnað boði um að taka við liði Tottenham um daginn. Hann sagðist frakar vilja fá þjálfarastarf í Hollandi. Glenn Hoddle virðist því hafa verið möguleiki númer tvö hjá...

Vill Vieira til Juventus? (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Darko Kovacevic sagði um daginn að Arsenal hefði verið tilbúið að láta Vieira fara til Juventus í staðinn fyrir Kovacevic og 9 milljónir punda. Menn tóku það ekki alvarlega þá þar sem Vieira hafði lýst því yfir að hann myndi aldrei spila á Ítalíu eftir að hafa séð framkomu stuðningsmanna Lazio í garð litaðra leikmanna. “Það er alveg möguleiki á því að ég fari til Ítalíu en það yrði aldrei til Lazio. Ég veit að Juventus er alvöru klúbbur sem verndar leikmenn sína.” sagði Vieira í samtali við...

Dagnogo lofar góðu (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eins og flestir vita eru KR-ingar að kanna marga möguleika á nýjum sóknarmanni í stað Andra Sigþórs. Þeir eru m.a. að skoða nígeríska landsliðsmanninn Daniel Amokachi. Amokachi lék með Everton gegn KR í Evrópukeppni bikarhafa 1995. Amokachi hefur skorað 14 mörk í 46 A-landsleikjum með Nígeríu og hefur skorað sex mörk í 32 Evrópuleikjum með Brugge, Everton og Besiktas. Hann hefur ekkert leikið undanfarin ár vegna mjög alvarlegra meiðsla. Fram kemur á heimasíðu KR að Moussa Dagnogo hafi leikið...

Campbell ánægður hjá Tottenham? (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sol Campbell ætlar að ræða við forráðamenn Tottenham á næstu dögum og sjá hvað þeir bjóða honum ef hann verður áfram hjá Spurs. Nýju eigendur Tottenham hafa sett saman áætlun fyrir næstu árin þar sem fram kemur hvernig þeir ætli að byggja félagið upp svo það komist í fremstu röð. Hann segist ekki ætla að íhuga aðra möguleika ef þeir sannfæra hann um að vera áfram hjá Tottenham því þar vilji hann helst af öllu vera. Hvað er Campbell að pæla? Það væri gaman að vita.

Leeds áfram án þess að spila? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Spænska knattspyrnusambandið fór fram á að sjá öll leikmannaskjöl hjá þrem efstu liðum spænsku deildarinnar í síðustu viku og þeim hafa ekki borist pappírar frá fjórum leikmönnum Deportivo La Coruna, þeim Helder, Jacques Songo'o, Aldo Duscher og Emerson. Samkvæmt “News of the World Sunday”, þá hafa starfsmenn UEFA fylgst vel með þessu máli, og ef þessir leikmenn hafa óhreint mjöl í pokahorninu þá gæti svo farið að liðinu verði vísað úr Evrópukeppninni. Leeds United gæti því átt greiða leið í...

Nakata með hótanir (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hidetoshi Nakata frá Japan hefur hótað því að yfirgefa Roma fái hann ekki fast sæti í byrjunarliðinu. Nakata hefur mátt verma bekkinn, enda staða hans erfið, þar sem hann spilar sömu stöðu og Totti. Nakata fær enn meiri samkeppni á næstu leiktíð þegar að Antonio Cassano gengur til lið við Rómverja. Parma, AC Milan og Inter hafa öll verið nefnd til sögunnar sem hugsanlegir kaupendur á Japananum.

Inter fær liðsstyrk frá Galatasaray (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Inter Milan hafa gert samning við Galatasaray um að kaupa af þeim Emre Belozoglu og Okan Buruk næsta sumar. Þeir eru báðir sterkir tyrkneskir landsliðsmenn. Leikmennirnir gríðarsterku hafa skrifað undir samning við Inter og mun samningurinn taka gildi 1. júlí. Fyrir hjá Inter er fyrrum félagi þeirra Hakan Sukur.

Búið spil hjá Íslenska liðinu (12 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ísland tapaði fyrir Búlgaríu, 2:1, í undankeppni HM í knattspyrnu. Ísland komst yfir á 25. mínútu með marki frá Ipswich manninum Hermanni Hreiðarssyni. Hemmi átti fast skot að marki og boltinn endaði í netinu. Búlgarar náðu að jafna metin á 35.mínútu. Það var enginn annar en Krassimir Chomakov sem skoraði. Hann fékk boltann fyrir utan teig og bombaði í netið án þess að Árni Gautur ætti möguleika á að verja skotið. Það var svo hinn mikli Dimitar Berbatov sem tryggði Búlgurum sigurinn á 12...

England 2-1 Finnland (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Englendingar unnu Finna 2-1 í undankeppni HM í dag. United maðurinn Gary Neville varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark eftir 27.mínútna leik. Fyrir utan það stóð Gary sig ágætlega í leiknum. Bróðir hans fékk hinsvegar ekkert að koma inná. Nokkra athygli vakti að Seaman stóð í markinu en kappinn skilaði hlutverki sínu vel. Rétt fyrir hlé náði Michael Owen, Liverpool-kappi, að jafna metinn. Fyrirliði Englands, David Beckham, skoraði svo sigurmarkið þegar fimm mínútur voru liðnar...

CM á leiðinni (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Samkvæmt pósti frá Vefstjóra eru þessi áhugamál á leiðinni: Raftónlist, Rokk, Hip hop, DJ, Grafík (photoshop o.s.frv.), Survivor, EVE, Heimspeki, Buffy, og………… Championship manager!!!

Arnar dregur sig úr hópnum (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Fram kemur á heimasíðu KSÍ að Arnar Gunnlaugsson hafi dregið sig út úr landsliðshópnum sem mætir Búlgörum á laugardaginn vegna veikinda. Atli Eðvaldsson ætlar ekki að kalla á annan mann í hans stað, enda nóg af framherjum í hópnum.

Cole vandar þjálfurunum ekki kveðjurnar (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Andy Cole vandar fyrrverandi landsliðsþjálfurum Englendinga ekki kveðjurnar. Cole hefur aldrei átt fast sæti í landsliðinu undir stjórn Keegan og Hoddle þótt oft hafi hann verið að spila vel því finnst honum frábært að það sé kominn þjálfari sem metur hann að verðleikum í stað þess að hafa enga trú á honum. Cole hefur verið í byrjunarliðinu 11 sinnum en hefur ekki enn tekist að skora, ástæðan er sú að hans sögn að þeir Glenn Hoddle og Kevin Keegan hafi aldrei haft neina trú á honum. “Það er...

Smith hjá Leeds til 2006 (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Alan Smith hefur framlengt samning sinn við Leeds. Smith sem er í 21 árs landsliði Englendinga, skrifaði undir fimm ára samning. Smith hefur verið í byrjunarliði Leeds í 34 leikjum á tímabilinu og hefur skorað í þeim 12 mörk. Peter Risdale stjórnarformaður Leeds sagði að Alan Smith væri lykilmaður í framtíðaráætlunum félagsins.

Goram í markinu á móti Bayern? (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Manchester United hafa keypt gamla brýnið Andy Goram frá skoska liðinu Motherwell. Goram, 36 ára, var landsliðsmarkvörður Skota til margra ára og er núverandi fyrirliði Motherwell. Ástæðan fyrir því að United keypti Goram er sú að forráðamenn Blackburn voru ekki tilbúnir að lána Alan Kelly til United. Þar sem óvíst er hvort Barthez gæti verið í markinu í Evrópuleiknum gegn Bayern vegna meiðsla þurfti Ferguson að vera fljótur að finna markmann þar sem hann treystir ekki Paul Rachubka.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok