Júgóslavinn Alexander Ilic (30) spilaði með Eyjamönnum á miðvikudag í deildarbikarnum. Aðeins einum degi frá því hann kom til landsins. Ferðalagið virtist þó ekki sitja í honum því kappinn gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk Eyjamanna í 3-3 jafntefli gegn ÍR.

Hann mun fara með Eyjamönnum í æfingaferð til Spánar í byrjun apríl og að henni lokinni verður tekinn ákvörðun um það hvort gerður verði samningur við kappann. Ef eitthvað er að marka frammistöðu hans gegn ÍR gætu Eyjamenn verið að fá mjög sterkan leikmann.