Alan Smith hefur framlengt samning sinn við Leeds. Smith sem er í 21 árs landsliði Englendinga, skrifaði undir fimm ára samning. Smith hefur verið í byrjunarliði Leeds í 34 leikjum á tímabilinu og hefur skorað í þeim 12 mörk. Peter Risdale stjórnarformaður Leeds sagði að Alan Smith væri lykilmaður í framtíðaráætlunum félagsins.