Darko Kovacevic sagði um daginn að Arsenal hefði verið tilbúið að láta Vieira fara til Juventus í staðinn fyrir Kovacevic og 9 milljónir punda.

Menn tóku það ekki alvarlega þá þar sem Vieira hafði lýst því yfir að hann myndi aldrei spila á Ítalíu eftir að hafa séð framkomu stuðningsmanna Lazio í garð litaðra leikmanna.

“Það er alveg möguleiki á því að ég fari til Ítalíu en það yrði aldrei til Lazio. Ég veit að Juventus er alvöru klúbbur sem verndar leikmenn sína.” sagði Vieira í samtali við ítalska blaðið Tuttosport.