Cole vandar þjálfurunum ekki kveðjurnar Andy Cole vandar fyrrverandi landsliðsþjálfurum Englendinga ekki kveðjurnar. Cole hefur aldrei átt fast sæti í landsliðinu undir stjórn Keegan og Hoddle þótt oft hafi hann verið að spila vel því finnst honum frábært að það sé kominn þjálfari sem metur hann að verðleikum í stað þess að hafa enga trú á honum.

Cole hefur verið í byrjunarliðinu 11 sinnum en hefur ekki enn tekist að skora, ástæðan er sú að hans sögn að þeir Glenn Hoddle og Kevin Keegan hafi aldrei haft neina trú á honum. “Það er gaman að vera í liði þar sem þjálfarinn styður þig. Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ einhvern stuðning hjá landsliðsþjálfara. Þeir hafa rétt á að hafa skoðun en mér var alveg sama hvað þeim fannst. Ég vissi alltaf að ég gæti staðið mig með landsliðinu.”

Segir Cole, en hann er ekki eini Englendingurinn sem er ánægður með nýja sænska landsliðsþjálfarann.