Cassano með stjörnustæla Antonio Cassano gengur illa höndla þá miklu athygli sem hann hefur fengið eftir að hann skrifaði undir samning við Roma. Hann lenti í rifrildi við þjálfara ítalska U-21 árs liðsins um daginn þar sem hann taldi sig eiga áskrift að sæti í byrjunarliðinu og rauk því af æfingunni.

Núna réðst hann að myndatökumanni fyrir utan heimili sitt. Einhverjir grínarar sem sjá um sjónvarpsþátt á Ítalíu komu heim til hans og buðu honum ost og það átti að vera alveg rosalega fyndið, en Cassano fannst þetta ekki sniðugt og ýtti í myndatökumannsem missti myndavélina og hún eyðilagðist. Cassano er nú harðlega gagnrýndur fyrir það hvað hann sé orðinn alltof merkilegur með sig.

Stjóri Bari sagði að nú væri Cassano að ganga í gegnum erfiða tíma í lífi sínu og hann mætti ekki við miklu áreiti.