Dagnogo lofar góðu Eins og flestir vita eru KR-ingar að kanna marga möguleika á nýjum sóknarmanni í stað Andra Sigþórs. Þeir eru m.a. að skoða nígeríska landsliðsmanninn Daniel Amokachi. Amokachi lék með Everton gegn KR í Evrópukeppni bikarhafa 1995. Amokachi hefur skorað 14 mörk í 46 A-landsleikjum með Nígeríu og hefur skorað sex mörk í 32 Evrópuleikjum með Brugge, Everton og Besiktas. Hann hefur ekkert leikið undanfarin ár vegna mjög alvarlegra meiðsla.


Fram kemur á heimasíðu KR að Moussa Dagnogo hafi leikið vel gegn ÍR í Deildabikarnum, en þetta var fyrsti leikur hans með KR-ingum en hann mun vera til reynslu hjá í rúma viku.

Dagnogo skoraði fyrsta mark leiksins á 12.mín og átti nokkrar ágætar tilraunir í viðbót. KR-ingar sem lögðu leið sína suður voru sáttir við frammistöðu Frakkans.