Hidetoshi Nakata frá Japan hefur hótað því að yfirgefa Roma fái hann ekki fast sæti í byrjunarliðinu. Nakata hefur mátt verma bekkinn, enda staða hans erfið, þar sem hann spilar sömu stöðu og Totti.

Nakata fær enn meiri samkeppni á næstu leiktíð þegar að Antonio Cassano gengur til lið við Rómverja. Parma, AC Milan og Inter hafa öll verið nefnd til sögunnar sem hugsanlegir kaupendur á Japananum.