Sol Campbell ætlar að ræða við forráðamenn Tottenham á næstu dögum og sjá hvað þeir bjóða honum ef hann verður áfram hjá Spurs. Nýju eigendur Tottenham hafa sett saman áætlun fyrir næstu árin þar sem fram kemur hvernig þeir ætli að byggja félagið upp svo það komist í fremstu röð.

Hann segist ekki ætla að íhuga aðra möguleika ef þeir sannfæra hann um að vera áfram hjá Tottenham því þar vilji hann helst af öllu vera. Hvað er Campbell að pæla? Það væri gaman að vita.