Fram kemur á heimasíðu KSÍ að Arnar Gunnlaugsson hafi dregið sig út úr landsliðshópnum sem mætir Búlgörum á laugardaginn vegna veikinda.

Atli Eðvaldsson ætlar ekki að kalla á annan mann í hans stað, enda nóg af framherjum í hópnum.