Hoddle á fund hjá Spurs Glenn Hoddle ætlar að hitta forráðamenn Tottenham seinni partinn í dag. Ekki var búist við því að forráðamenn Tottenham myndu ræða við Hoddle fyrr en eftir tímabilið en stjórnarformaður Southampton gaf forráðamönnum leyfi til að ræða við Hoddle í dag.

Ruud Gullit var í viðtali við sjónvarpsstöð í Hollandi og sagði hann hefði hafnað boði um að taka við liði Tottenham um daginn. Hann sagðist frakar vilja fá þjálfarastarf í Hollandi.

Glenn Hoddle virðist því hafa verið möguleiki númer tvö hjá Tottenham og þykir mjööög líklegur til þess að taka við liðinu.