Yngri stóðhestar eru farnir að koma við sögu sem feður hátt dæmdra afkvæma á kynbótasýningunni á Gaddstaðaflötum. Sproti frá Hæli er faðir efsta stóðhests í 6 vetra flokki, Dropa frá Stóra-Dal, sem er með 8,31 í aðaleinkunn, jafn í kostum og byggingu. Andvari frá Ey er faðir efsta 5 vetra stóðhestsins, Blæs frá Búðarhóli, og næstefsta 6 vetra stóðhestsins, Gnýs frá Stokkseyri. Gustur frá Hóli á aftur hæst dæmda 4 vetra stóðhestinn að syni, Fleng frá Böðmóðsstöðum 2. Sveinn Hervar stimlar sig...