Hector Cuper, þjálfari Valencia, játaði á blaðamannafundi í dag að hann væri í viðræðum við Internazionale um að taka við þjálfun liðsins í sumar.

“Ég er í viðræðum við Inter en það hefur ekki verið skrifað undir neitt og það er engan veginn ljóst hvað verður úr þessum viðræðum,” sagði Cuper og vildi að öðru leyti ekki tjá sig frekar um málið.

Þetta er í fyrsta skipti sem Cuper játar að hann hafi verið í sambandi við önnur lið en það hefur lengi legið í loftinu að hann færi frá Valencia í sumar og héldu flestir að hann færi til Barcelona en nú lítur út fyrir að Inter standi betur að vígi í slagnum um hann.