Breskir fjölmiðlar hafa stokkið til handa og fóta eftir að þeir fréttu það að Patrick Vieira ætti í viðræðum við Arsene Wenger um framtið sina og Arsenal.

Það finnst breskum fjölmiðlum gefa í skyn að hann sé að íhuga að yfirgefa félagið. Það má vel vera en hann er að minnsta kosti að íhuga framtíðina þessa dagana.

“Ég er í viðræðum við Arsenal og eftir þær mun koma í ljós hvort ég verð hér áfram eða fer eitthvert annað,” sagði Vieira við franska blaðið l´Equipe.

Vieira varð fyrir miklum vonbrigðum með lið Arsenal í ár og sættir hann sig ekki við neitt annað en að vera í liði sem vinnur titla en það hefur Arsenal ekki gert í þrjú ár núna.