Er starfsemi sæðingastöðvarinnar á Gunnarsholti að líða undir lok.
Í samtali við Pál Stefánsson dýralækni og framkvæmdastjóra sæðingastöðvarinnar á Gunnarsholti kom fram að rekstur stöðvarinnar væri erfiður. Páll sagði ennfremur að Orrafélaginu hafi verið send tilkynning þess efnis að ekki væri hægt að reka stöðina á þessum grundvelli lengur en eins og allir vita hefur Orri frá Þúfu verið aðal stóðhestur stöðvarinnar. Aðspurður um framtíð stöðvarinnar þá er hún óljós en einhverra breytinga er að vænta á komandi mánuðum, þá er bara spurningin hvort Orri fái að gera þetta af náttúrinnar hendi.