Það lítur allt út fyrir það að Frank Lampard verði seldur mjög fljótlega frá West Ham.

Lampard varð mjög reiður er faðir hans, Frank Lampard eldri, var rekinn frá West Ham ásamt Harry Redknapp, en hann var aðstoðarmaður Redknapp.

Hann hefur gefið í skyn að hann geti ekki unnið fyrir menn sem fara svona illa með aðra.

Verðmiðinn á honum verður líklegast í kringum 10 milljónir punda og líklegustu liðin til þess að bítast um hann eru Leeds, Aston Villa og Tottenham.