Það eru fleiri en Manchester United sem hafa áhuga á Tékkanum Pavel Nedved því Sergio Cragnotti, forseti Lazio, greindi frá því í gær að Lazio hefði borist 19 milljón punda tilboð í Nedved frá Juventus.

“Við höfum fengið tilboð frá Juve í Nedved. Það er enginn leikmaður ekki til sölu og það munu alltaf koma tilboð í bestu mennina frá stærstu liðunum.

”Ég vildi helst ekki selja neina af leikmönnum mínum en félagið þarf að huga að því að hafa fjárhaginn í lagi," sagði Cragnotti.

Nedved er þessa dagana í samningaviðræðum við Lazio um nýjan samning en launakröfur hans eru víst ekki í neinu samhengi við það sem Lazio er tilbúið að borga honum. Þess vegna er Lazio til í að hlusta á tilboð í Tékkann magnaða.