Chelsea hefur gengið frá kaupum á hinum 23 ára gamla franska varnarmanni William Gallas frá Marseille fyrir 6.2 milljónir punda.

Gallas skrifaði undir fimm ára samning við Chelsea.

Það eru þó ekki bara góðar fréttir úr herbúðum Chelsea því Gustavo Poyet hefur farið fram á að verða settur á sölulista hjá félaginu. Hann segist vilja titla áður en hann leggur skóna á hilluna og hann sér það ekki gerast í nánustu framtíð með Chelsea.