Sænski markvörðurinn Magnus Hedman, leikmaður Coventry, hefur greint frá því að ítalska félagið Parma sé á höttunum eftir honum.

“Ég veit af áhuga Parma á mér og ég er mjög stoltur af því,” sagði Hedman.

Hedman ætlar ekki að spila áfram með Coventry þar sem þeir eru fallnir úr úrvalsdeildinni og svo ætlar Parma líklegast að selja Buffon í sumar og er Barcelona í bílstjórasætinu þar.