Fram kemur á fréttavef BBC í dag að Juventus ætli sér að bjóða 12 milljónir punda í Freddy Kanoute, framherja West Ham, um leið og West Ham hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra.

Kanoute hefur áður verið orðaður við Juventus og virðist vera þó nokkur áhugi fyrir Kanoute í Tórínó.

Ef West Ham ákveður að selja Kanoute má Juventus þó búast við því að ensk lið berjist um hann líka.