David Buchler, varaformaður Tottenham, hefur sagt að það komi ekki til greina að Sol Campbell spili með nokkurn tíma með Arsenal.

“Það frýs í helvíti áður en Sol Campbell spilar í treyju Arsenal.

”Hann mun aldrei fara frá Spurs til Arsenal. Hann er okkur mjög kær og þess vegna höfum við gert honum tilboð sem myndi gera hann að launahæsta leikmanni Bretlands.

“Við sitjum enn að samningaborðinu og erum nokkuð vongóðir um að halda honum. En það þarf tvo til og hann verður að sýna einhvern samningavilja því við höfum verið mjög rausnarlegir,” sagði Buchler.

Talað hefur verið um að Spurs sé tilbúið að bjóða honum 80.000 pund á viku.