Jorg Albertz skrifaði í gær undir þriggja ára samning við HSV í Þýskalandi.

HSV greiðir Glasgow Rangers 3 milljónir punda fyrir Albertz sem gerir hann að dýrasta leikmanni félagsins.

Albertz lék einmitt með HSV áður en hann fór til Rangers fyrir 4 milljónir punda. Hann vann þrjá meistaratitla með Rangers.

Þar með hafa þeir Stig Töfting og Erik Meijer fengið góðan félaga og er ljóst að HSV stefnir hátt á næsta tímabili.