Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hadrianus
Hadrianus Notandi frá fornöld 41 ára karlmaður
1.280 stig
Áhugamál: Kvikmyndagerð, Myndlist

Nokkrir punktar (11 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hér á eftir koma nokkrir punktar í kvikmyndagerð sem hafa almennt gagnast mér við gerð stuttmynda. Handrit: *Forðast það að gera myndir um dóp og morðingja, virkar mjög sjaldan. *Endurskrifa handritið oft og fáið aðra til að hjálpa, gerir talsmátann raunverulegri. *Forðist að gera byssumyndir, byssur líta bara asnalega út í íslenskum myndum. Framleiðslustigið: *Skráið niður alla leikmuni sem notaðir verða í myndinni. *Best er að gera storyboard, sparar svita við breytingu ljósa og...

Blóð og sár (19 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þó ég sé almennt á móti því að gera ofbeldisfullar bíómyndir og að nota byssur í íslenskum bíó myndum þá þurfti ég að farða stórt sár eftir andlitinu á mér fyrir einsa stuttmynd. BLÓÐ: Þrjár aðferðir eru til að redda blóði 1. Kaupa Grimas gerviblóð frá Bandalagi Íslenskra leikara (Dýrt en gott) 2. Blanda saman Sírópi, smá vatni, rauðum matarlit og Maís sterkju (ótrúlega raunverulegt en viðbjóður á bragðið) 3. Blanda saman sírópi, smá vatni, rauðum matarlit og mjólk í stað serkjunar (Ekki...

Hvernig skal yrkja ljóð (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hvernig á að yrkja ljóð hvernig skal semja lífsins óð fyrst er skál látin á borð og setur útí nokkur orð smá glens og smá gaman og hrærir þessu öllu saman tilfinningum bætir við þær leggja þessu lið skellir svo í pott og sýður hugsar um orðin á meðan þú býður kryddar svo með því sem við hendi er myndgervingar, rím, í pottinn fer og öllu svo hellir pappírinn á glænýtt ljóð, þú ert búinn að fá

að og frá, Birtubrá (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Eitt sinn lítill heimur var Sem af öllum öðrum bar Fjólublá tún og himinn bleikur Trén blá, engin mengun, enginn reykur reykur reykur ég vildi fara, en ég var smeykur ég vildi fara, en það var enginn leikur Enn eina nótt er stjörnur glömpuðu himninum á Og halastjarna, sér yfir mig brá Mér í halann tókst að ná Og heimili mínu barst ég frá Loksins rættist mín hjartans þrá Er ég lenti plánetunni á Sem mennirnir kalla Birtubrá Hús ég byggði úr fjólubláum stráum mjög mjög mörgum, en ekki fáum...

María og fljúgandi skipið -Tragedía - lokakafli (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
4. Kafli – Skipið flýgur Dagar liður og skipið varð tilbúið, kælirinn bar galla, stóran galla og Árilíus vissi það. Með lipri tungu sannfærði hann Mikael, um hve mikilfenglegt, frábært það væri ef María myndi fljúga fyrst, tákn Mikaels um eilífa ást til hennar. Mikael féll í gildruna. Þeir stóðu þrír, Markús, Mikael og Árilíus og horfðu á skipið rísa hægt og rólega frá jörðunni inn í morgunsólina. “Ábyrgðin er þín.” Sagði Markús og áhyggjutón var á rödd hans. Hve mikilfengleg þessi sjón var,...

María og fljúgandi skipið - Tragedía - kafli 3 (8 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
3. Kafli – Afmæli Árilíusar Og loks reis sá dagur sem menn höfðu beðið eftir, afmæli Markúsar. Saman sátu þau, uppábúin við matarborðið. “Hvernig gengur svo með þetta… Fljúgandi skip?” spurði Markús “Vel, mjög vel…” var svar Mikaels en svo greyp Árilíus framí: “Smá vandamál, bara pínulítið, þyngdin á skrokknum, vandamál með nákvæmlega hve mikinn þrýsting sprengivélin á að þrýsta svo skipið fljúgi, án þess þó að þjóta til stjarnanna.” “Virðist flókið.” Sagði María hlýlega. “Þvert á móti.”...

Manía (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hjartað dansar og syngur, Ég leik við hvern minn fingur Í dag er allt svo gott Í dag er allt svo einfalt og flott Þó það blási og rigni Þó það snjói og allt frýs Þá veit ég að það lygni Og sólin aftur rís — Myrkrið grúfir yfir mér Heldur mér föstum í örmum sér Og niður kinnar renna tár Því í hjarta, ég ber sár Enginn er söngur, né dans Því þungt er hjarta manns Hvað skal gera, hvert skal fara Hvar skal ég leita mér svara — Ég hata það, hata það allt Ég hata það þúsundfalt Þá köldu daga sem...

ég skrifa ljóð (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég sat og hugsaði svo stíft hausnum varð bara ekki hlíft Bók, sögu eða ljóð ævintýrið í mér stóð Svo gerðist eitthvað, ég veit ei hvað ég byrjaði að skrifa það ljóð, sem rímar, ljóð sem er ljóðið núna birtist hér í langan tíma ei ljóð hef ritað afhverju? ég hef ei vitað en allt í lagi virðist vera miða við það sem ég er að gera En svo reis vandamál á ný djúpu vatni sit ég í Hvernig er best að enda á ég að ýta strax á senda? Nei eitthvað flott ég verð að gera eitthvað flott það verður að vera...

María og fljúgandi skipið – Tragedía - kafli 1 (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þetta var upphaflega stutt leikrit sem ég samdi ásamt tveim vinum mínum fyrir tveimur árum. Ég ákvað að setja söguna í stuttmynda form og vona að takist hafi vel. Þetta er Tragedía í fjórum köflum. 1. Kafli - María og Mikael Tímalaus saga í landi sem á sér engann stað. Nútíma tækni þekkist ekki, menn eru aðalsmenn, því betri skylmingarmaður því meiri virðingu er þér vottað. Við horfum frá borginni Metod, sem er í raun keim lík gamalli spánskri borg. En augun eygja til suðurs, eftir grófum...

Aðeins brengluð hugsun (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Á litlu kaffihúsi grafinn inn í horn situr hann vafinn skugga. Augun dimm, tóm. Hárið brúnleitt og fitugt. Andlitið skítugt, og á vanga hans vex nokkura daga gamalt skegg. Klæddur í bláann vinnugalla. Situr bara þarna og sötrar kaffi og horfir á iðandi lífið sem gengur fram hjá glugganum á kaffihúsinu. En falið bak við þetta andlit er brengluð hugsun sem vefur saman verknað sem enginn maður óskar eftir. Þegar kaffið klárast úr bollanum og bollinn skellur á undirskálina stendur þessi maður...

Stríðið á Himnum partur 2 (1 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Uziel hneigði sig í lotningu. Ég horfði á eftir honum hverfa út úr herberginu. Uziel, hann hafði staðið með mér frá upphafi, sannur vinur. En ég vissi að efi barst í brjósti hans, og er það að undra, eftir að hafa verið sendur í útlegð frá heimili sínu í þúsundir ára. Hann var aldrei sá sterkasti, og auðvelt að snúa skoðunum hans, en ég vissi að hann yrði mér hliðhollur áfram, hann var og er og mun alltaf vera sannur vinur. Ég er Lúsifer, ég var hægri maður þess gamla, þar til ég þoldi ekki...

Stríðið á Himnum (5 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Allt í kringum mig rennur ólgandi hraun sem spýtist við og við upp í loftið, fyrir ofan brennur vítiseldurinn og sífellt fleiri sálir bætast í hópinn hérna niður. Ég er Uziel, ég er fallinn engill. “Hvaðan hverfur fólkið þessa sýn?” spurði maður sem stóð við hliðiná mér. Hár hans bikarsvart og augu dökk og seiðandi. andlit fölleit, snjáð öllum mennskum tilfinningum. klæddur í gráan rykfrakka. Hann var bar af öðrum, hann var fegurð alls heimsins, morgunn roðinn. Hann hét Lúsifer. “Hvað blæs...

Víkingsblóð (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Með sverði klauf ég höfuð eitt enn einn manninn hef ég deytt víkingsblóð um æðar rennur innra með mér hatur brennur Hólmganga að gömlum sið um sigur, til óðins bið geng svo fram, með sverði hegg gegnum skrokk og af með legg Víkingur ég vild ég væri og til fornaldar strax færi en ég verð að sætta mig við það að vera tölvunörd á þessum stað Víkingar í draumi sækj'að mér reyna að fá mig í lið með sér og á hverri nóttu um æðar rennur víkingsblóð og hatur sem brennu

Skáldsaga Sannleikans (3 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 9 mánuðum
(Þetta var miklu lengri saga, en ákvað að stytta hana all verulega) Það var föstudagskvöld og Einar var að hafa sig til fyrir partý, Einar, einkennulegur náungi, rétt skriðinn yfir 20 ára aldurinn, hann var veikburða mjög. Hann hafði þjáðst af astma allt sitt líf, hangið yfir bókum og er ekki mikið fyrir að fara út á lífið. En þetta kvöld var öðruvísi, þetta kvöld var upphafið af endanum. Hann greiddi hárið í snatri inn á baði og hljóp svo út þar sem Gunni vinur hans beið út í bíl eftir...

Landamæri Raunveruleikans (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hvert sinn er himinn grét og regnið lamdi óreglulegum, sefandi takti á rúðuna hjá mér, í hvert sinn sem sólin braust gegnum þykka skýja bakkana og sendi geisla sína gegnum tómarúm alheimsins heim til mín. Í hvert sinn sem vindur blés gegnum loftið frá stöðum sem ég vissi ekki af og hristi greinarnar á trjánum sem virtust lifan við. Í hvert sinn sem snjórinn féll niður og lagði jörðina varlega undir hvítan feld. Þá sat ég einn og horfði gegnum gluggan, horfði á lífið sem blómstraði nokkrum...

Hetjan (5 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Kvöldið tók yfir daginn, dimm nóttin nálgaðist hratt, Þau gengu sama frá leikhúsinu, héldust hönd í hönd, bros lék um andlit beggja, ánægð með lífið og þá stöðu sem þau höfðu unnið sig í. Vandræði heimsins, kvöl og hatur voru langt frá hugsun þeirra og augnarblikið var þeirra til að eiga að eilífu og þau nutu þess, nutu ástarinnar. En ekkert var byggt eða skapað til að endast. Þegar þau stungu sér inn í dimmt húsasundið rétt frá heimili sínu í leit að styttri leið heim, mættu þau ungum manni...

Ástin sem ekki var (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hér er ljóð gert eftir Bragháttum, ágætt, hefði samt geta verið betra ef ég hefði eitt meiri tíma í það. Stjarnan skær á himni skín stjarnan ljúfa, stjarnan mín sem lýsir nótt, lýsir leið loksins virðist gatan greið En samt er það ekki satt samt rætist ekki draumur um betri tíð, sem vonin batt berst gegn mér heimsins flaumur Var okkur ekki ætlað að vera eitt er ekki von um ástand breytt sú ást sem í brjósti berst bara það hefði aldrei gerst En í draumi sá dagur kemur dagurinn er allt mun...

Verðir Alheimsins (5 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Sama hversu ólíklegt eða heimskulegt það er. Sama hversu ótrúlegt eða barnalegt. sama hversu skrítið eða venjulegt. minnsta villa í tíma og rúmi getur haft afleiðingar sem enginn sá fyrir. Tortíminngu alheimsins vegna steins sem var færður gegn áður settum reglum og ákvörðunum alheimsins, og kveðjuverkun hefst, eitt leiðir af öður og skyndilega er ekkert. en þetta gerist ekki., þetta mun ekki gerast, því það eru verur, verur sem lifa á einum stað. Í upphafinu, í endanum, þar sem allir tíma...

Er Rómantík dauð? (15 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum
Í mínum huga er rómantík kvikmynd. Fullkominn ást milli tveggja einstaklinga sem svo löngu áður hafði verið rituð hjá örlögunum, stefnumót, sólarlagið, rósir, kossar, notarleg stund við arineldinn eða kertaljós, kvöldmatur bara tvö, eiga lag saman, að uppgvöta að þú getur ekki verið án hins einstaklingsins, og svo hvað svo, svo stendur maður upp slekkur á sjónvarpinu bíður maka sínum góða nótt og drífur sig í háttinn. Og ég spyr, er þessi gamla góða rómantík (Svart/hvítu myndirnar)dauð, er...

Tár þess sem er (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Tár í hrynjanda lífsins Niður kinnar falla Tár í höf heimsins Niður kinnar falla Ég sit og græt fortíð mína Ég sit og bölva nútíð minni Ég sit og óttast framtíð mína ég sit og hugsa Hugsun leitar til nýrra vonar En hún finnst ekki Hugsun leitar til betri tíma Sem aldrei koma Tárin er fortíð mín Framtíð og nútíð Tárin mín þorna og hverfa Og ég bara sit og hugsa Þó dagar líði eins og vatn gegnum líf mitt þó það birti stundum til í dimmum skotum hugans Ég bugast Ég gefst upp ég verð hræddur ég...

Formsatriðið Ég (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég er formsatriði alheimsins. stafur í samningi guðs við sjálfið. ég er aðeins fylling í tómið. Skipt út þegar ég verð ónothæfur. snjókorn í málverki meistarans. og bráðna með tímanum og þegar allt kemur til alls. þá er ég ekki þarfur. því hver les samninginn eða dáist af málverkinu annar en meistarinn sjálfur?

Svarið við tilgangi alls (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hann hét nafni eins og annað fólk. Hann var fæddur eins og annað fólk. Hann leit út eins og annað fólk. En hann var ekki eins og annað fólk. Honum var gefið nafnið Xanax í upphafi, en í gegnum aldirnar hefur hann breytt um nafn til að falla inn í það þjóðfélag sem hann lifir hjá að hverju sinni. Núna kallar hann sig Gunnar, því seinustu 50 árin hefur hann lifað á Íslandi, í annað sinn á ævinni, og núna er árið 2015. Gunnar er ca. 2200 ára gamall, þó hann sé sjálfu ekki viss, því hann hætti...

Hugsunin (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Einkennileg hugsun sem læðist að mér í húmi nætur Hugsun sem læðir hrolli eftir endirlöngu bakinu Hugsun sem er upphafið, endirinn og tilgangur alls Og þetta sekúntubrot sem hugsunin lýsir upp huga minn og lyftir mér upp til skýjana í leit að fullkomnun því hugsunin er hið endanlega svar! Þessi hugsun um ekki neitt nákvæmlega ekki neitt kyssir mig svefninum langa og ég veit allt

Raunveruleikinn??? (4 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Þetta er sá heimur sem ég þekki þó ég viti ekki lengur hvort ég þekki hann, því ímynd mín af öllu hefur verið brotin upp og splundrast í milljónir agnalítilla bita, líkt og þegar kristalglas fellur á kalt og tilfinningalaust gólfið. Ég stend við gluggan heima og mæni út í svartnættið og spyr sjálfan mig hvað liggi að baki raunveruleikanum, hvort hann sé til eða hvort heimspekingurinn berkley hafði rétt fyrir sér; “Það sem ég sé ekki, er ekki.” Þetta fyllir mig hræðslu um að ekkert sé, að ég...

Blessed by godess (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
“Ere the new era Ere the man shall walk thou shall witness a wonder And that wonder shall brake the sky and tear the earth and make new homes and as man dies thou shalt not die for thou has the name that shall be written in book of gods” That she spoke I liked it not for I knew what was and as I answered the godess herself and told with heavy heart that so shall be I saw the great vision the vision of future and again she told me “Thou shall teach Thou shall be from thee a new breed shall...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok