Ég sat og hugsaði svo stíft
hausnum varð bara ekki hlíft
Bók, sögu eða ljóð
ævintýrið í mér stóð

Svo gerðist eitthvað, ég veit ei hvað
ég byrjaði að skrifa það
ljóð, sem rímar, ljóð sem er
ljóðið núna birtist hér

í langan tíma ei ljóð hef ritað
afhverju? ég hef ei vitað
en allt í lagi virðist vera
miða við það sem ég er að gera

En svo reis vandamál á ný
djúpu vatni sit ég í
Hvernig er best að enda
á ég að ýta strax á senda?

Nei eitthvað flott ég verð að gera
eitthvað flott það verður að vera
svo kom góð hugmynd ég ætla að vona.
ég enda þetta bara svona!!!