ef að þú lest fleiri svör við þessum korki þá sérðu kannski, að eitt svarið snýst ma. um að skáldið vill ekki fá greiningargagnrýni. Sjálfur hef ég postað nokkrar slíkar gagnrýnir við mikla óþökk þeirra er fá. Skáldin hérna vilja ekki láta greina ljóðin sín, þe. form, innihald, bragfræði og slíkt. Þau vilja mikið frekar heyra hvort að ,,efnið" komist til skila. Annars þætti mér ekki verra ef einhver myndi taka sig til og greina mín ljóð, ekki kvarta ég yfir því. En svona er nú það…