G * * * *

Ég hugsa til þín daga og nætur
ég hugsa um þig er þú grætur
ef ég vissi hvar þú værir
vissi alltaf hvert þú færir
ég þrái að vita þrái að fá
grænu augun þín að sjá.



og hérna er annað, ætli ég hafi ekki verið svona 10-12 ára þegar ég samdi það:

Lítill kertalogi

Aðeins lítill kertalogi
lýsti upp herbergið
þau tvö voru alein í heiminum
þau sögðu ekkert
því orð voru óþörf
þau skildu hvort annað

Hugsanirnar flugu inn og út
um höfuðið
inn um annað eyrað,
út um hitt
þau vissu ekki hvað
þetta hét
en það var allt í lagi
þau skildu hvort annað.

kveðja kvkhamlet