Ég þekki þig ekki
en mér finnst það nú samt
ég þekki þína hrekki
og allt sem þú kannt

Ég vil kynnast þér
og þínum innri manni
ég vil þú takir eftir mér
ein í ástarbanni

Ég skoða myndir
ég skoða skrár
um heiminn þú syndir
um hafsins gár

Ég botn'ekki í þessu
Ég skil ekki neitt
allt fellur saman
það virkr ekki neitt

Nú þekki ég þig
eftir langan tíma
ég reyndi svo lengi
að ná þig í síma

En núna ertu kominn
ég brosi á nýtt
ég þekkti þig alltaf
hjá þér er svo hlýtt

Ég þekki þig ekki
en mér finnst það nú samt
ég þekki þína hrekki
og allt sem þú kannt



Þetta er nú bara smá spaugiljóð, datt í hug að semja ljóð og byrjaði að skrifa beint inn á huga bara svona í gamni. Las ekki yfir, en endilega komið með comment, hvernig ég get lagað þá áður en ég set endalegann punkt á það…