Ég ráfaði og reikaði í myrkrinu
rammvillt ég leitaði að ljósinu
svo komst þú og sýndir mér það
hve ljúfur og fagur það birti til
fegurri en nokkuð sem fyrr ég sá
fylgdir þú mér rétta leið

Aldrei áður ég aðra eins
ást hef fundið hjá sjálfi mér
ég hélt að slíkt væri ekki til
en þá komst þú og sýndir mér
að veröldin fallegri en fannst mér fyrr
fyrir það þakka ég þé