Þú,
Aðeins þú
Getur hrært við mér…
En þú vilt það ekki
Því þú ert hræddur um að sökkva,
Sökkva í tilfinningum mínum.
Því þú veist að það er ekki aftur snúið
Eftir að það er búið að hræra í þeim..

Tilfinningar,
Tilfinningarnar mínar eru búnar að vera í dvala
Þær eru búnar að vera í dvala alltof lengi
Því ástæðan fyrir því er að ég er búin að byggja.
Byggja og byggja rosalega stóran og traustann vegg.
Veggurinn er til a vernd mig frá öllu illu
Því ég hef brennt mig oft, of oft.

Þú,
Þú bræddir mig,
Með einu augnatilliti
Þegar þú sást mig í fyrsta skipti.
Ég hef aldrei trúað á “Ást við fyrstu sýn”
En þú lest mig trúa og ég trúi núna rosalega heitt núna
Því þú ert til og núna er bara að láta hana vara,
Vara að eilífu.

Eilífðin,
Að eilífu lifum við saman.
Í sorg og sút,
Í gleði og hamingju,
Munum við alltaf deila tilfinningum okkar.
Að eilífu.

Ástin,
Hún er ekki auðveld
En er þess virði að berjast
Því maður fær svo mikið til baka.