hljóðlát myrkrið fyllir herbergið
alger þögn, ekki heyrist múkk frá fólkinu
hann þegir, hún þegir, allir þegja…
spenna, óvissa, engin hreyfing.
“NO I WONT MAKEOUT WITH YOU!”
(heyrist í Adam Sandler)
*hlátur* *hlátur*
bros færist um salinn

Hann færir hönd sína rólega nær henni
tekur í hönd hennar óstyrkur
hún færir hönd hans neðar,niður eftir lærinu.
hann brosir, hún brosir
hún horfir í augu hans með sínum hvolpaaugum og deplar þeim
*slum* *slum*
varir þeirra mætast

…myndin er búin

hann fylgir henni heim
hann þegir, hún þegir
alger þögn.
Svo stynur hann uppúrsér:
“hvernig fannst þér myndin?”
hún svarar:“ææææji, veit ekki mér finnst Adam Sandler ekkert sérstakur”

*þögn*
hann tautar eitthvað með sjálfum sér,
þau kveðjast, bjóða hvoru öðru góða nótt
talast aldrei við aftur.