Karlmaður konuna lemur - sálina temur - tilfinningar kremur
Ríkisstjórnir drottna harðar - undir fölskum fánum varðar
Guðir á skýjatoppunum standa - börnum granda - eitri anda
…og í heiminum sálirnar liggja dauðar og marðar!!!

Saddam Hussein - Bin Laden - Fidel Castro - ógnarstjórn!!!
Adolf Hitler - Júdas Lærisveinn - Satan og ég…
Atli Húnakonungur - Nero Rómarkeisari - mannafórn!!!
Morðingi - nauðgari - ræningi og trúlaus… ég…

Við hindrum ei blóðbað - sökkvum í drullusvað - gungur
Ég er syndugur - blóðugur - hef gert svo margt - ungur
Ég stöðva ei ofbeldi - berst ei gegn blóðveldi - sál mína seldi
…dauður að innan - blauður að utan - rauður af blóði…

Ég er engu skárri en allir þeir - er heimurinn deyr - guð dæmir
Ég leit til hliðar - er barnið dó - heimurinn riðar - ég hló
Því engin var hér sorg - engin sársaukaorg - hljóðlítil friðarborg
…en í leynunum - annars staðar - hvíla enn mennirnir slæmir…

Þið getið gert svo mikið - en hikið - og sitjið kyrr fyrir vikið
Ekkert er gefið - þið slefið - og steikurnar étið - svo feit
Barnið kafnar - í fjöldagröf hafnar - meðan magi ykkar dafnar
Hvenær erum við næst? Getum við sæst? Enginn veit…

Í næsta húsi ofbeldi ríkir!!!
Og dynkir engu líkir!!!
En við sitjum kyr og heyrum ei hljóðið
Líkið er burtu borið - og við sjáum ei blóðið…

Augun lokuð… eyru lokuð… afskiptaleysi
Lifum södd… deyjum gömul… með farða á feisi
Ég blandast í hópinn - geri ekkert einn
Og enginn hjálpar til - ekki neinn…

…og ég sé brátt að aurar mínir eru ekki til neins…
…okkar hjálp er lítil sem engin - veikburða - engin furða…
…því allir hér í heimi hugsa eins:

…“ÉG skipti öllu máli”


-pardus-

Það eru svo margir hérna í heiminum sem hugsa eins… ef enginn gefur pening nema ég, þá er sá peningur ekki til neins!!! ;/
En málið er bara það, að ef hver maður (segjum í iðnaðarríkjunum sem eru ca. 25% af mannkyninu) myndi borga 1000 kall í sameiginlegan sjóð til hjálpar bágstöddum í “hvaðafuckeduplandisemer”… þá myndum við fá út:

1000 * (0,25 * 6000.000.000) = 1.500.000.000.000 (sem útleggst á íslensku: 1,5 trilljarður króna!!!!)

En núna er ég bara að miða við 25% af mannkyninu sem myndi borga. Og ef allir myndu borga meira eða að fleiri myndu borga (einhverja upphæð sem jafngildir kannski bíóferð eða einum vodkapela) þá myndum við fá summu sem nægði til að fæða, jaaaaaa, allavega nokkra afríkubúa!!!

Jæja… aaaaaaaaaaaaallavega… nóg af áróðri í bili ;þ
Ég er ekkert skárri en þið og ég borga nánast aldrei í þetta ;/ (eyði frekar peningunum í algjöra vitleysu). En þar sem mig munar ekkert svakalega um þetta núna, þá ætla ég bráðum að fara að borga kannski 500 krónur mánaðarlega ;) - Það munar um minna ;)

-(hinnótrúlegagóði)pardus ;þ
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.