Ok… þetta er doldið gróft og ljótar lýsingar, ég samdi þetta fyrir nokkru síðan þegar ég var pirraður út í allt og alla en sendi það svo aldrei inn. Þannig að… elskiði friðinn og strjúkiði kviðinn ;þ PEACE OUT!!!!!!


-Veraldarbræði-

Kjaftæði - þetta flæði - í gegnum fjandans bræði
Þessi heimur - rosa sveimur - af litlum ljótum maurum
Allir menn - ráðast enn - gegn annarra manna næði
Sálin sjúka - spjótin fjúka - og heilar fullir af aurum!!!

Satan hlær - blóðsær - og enginn sælu fær
Hvergi friður - stefnum niður - og engum líður vel
Syndin flæðir - heimi blæðir - og illgirnin er tær
Í fíkniefnum - við stefnum - niður í heita HEL!!!



En leiðin gegnum torstiginn dauðaskóg er vandrötuð
Morðhugsandi smásálir deyða allan kærleika og frið
Hvert stefnum við burt - þegar við erum enn glötuð?
Í guðlausu helvíti - fáum enga náð - og engan grið…



Ást!!!
Eina leiðin héðan brott…
Hlýja!!!
Allt sem þarf í köldum heimi…
Grið!!!
Gerir allt það vonda gott…
Friður!!!
Finnum hvort annað í þessum sveimi…



-(hippa)pardus- ;þ

BLAWH!!!! - lélegt!!! En það má kannski nota það sem texta í þungarokkslag… get ímyndað mér melódíuna ;)
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.