hann hleypur
á ofsaflugi
niður dalinn

tvær sólir
hækka sig
lækka sig

hann lækkar flugið

snertilending

í dal hamingjunnar
í sandgryfju dauðans


hann splæsir báða enda eilífðarhnútsins
sem ganga upp
og niður
í atburðarrásinni

öskrar

bergmálar fjöllin
rauðleitum bleikum


sent með kemískum hraðslætti
á myndvarpa alheims
þar sem ljósinu er lýst
milli rasskinna Guðs

tekur sig á loft


örlítið korn…



Stýmir Strimils 2001