Eftir fjórtán ára fangelsisvist
er þér hleypt út í kuldann
og þeir ætlast til að þú vitir eitthvað.

En þú, varla að það spretti hár á höku þinni,
nýr, ferskur eins og nýveiddur þorskur,
ert étinn eins og hver annar smáfiskur.

Smátt og smátt gefurðu eftir,
lætur endurforrita þig,
og verður eins og þeir vilja.

Af því að þú veist að
biluð tölva veldur þeim meira angri
en dauði þinn.