Skilningslaus
eru augu barnsins

þegar þú dregur upp
mynd af heiminum
eins og hann er

þegar þú dregur upp
mynd af sjálfum þér
eins og þú ert

á vegg er blóð
afmyndast
mynd af þér

Þú horfir reiður
eitt augnablik
en dofnar svo

eins og gamalt brauð
myglar þú

samviska þín er
eins og skröltormur í símaklefa

Skilninglaus
eru augu þín