Bravó! Bragfræðilega sé ég engra leiðréttinga þörf, þetta eru glæsileg sléttubönd. Eina athugasemdin sem mér dettur í hug að gera er við innihaldið í seinnipartinum á fyrri vísunni, það verður pínulítið andkannalegt, en slíkt er afar erfitt að forðast 100% í sléttuböndum. Þessi annmarki lagast þó, þegar vísan er lesin aftur á bak :) En aðallega: Bravó!
Vissulega er allt rétt sem fólk segir hér að ofan, en þótt braglaus geti góð gerst, er annað fegra: Að þú stuðlir öll þín ljóð, enda skemmtilegra. Það getur verið vandasamt að yrkja fyrir kærustuna. Sá vandi getur m.a.s. orðið yrkisefni: http://www.ljod.is/index.php/ljod/view_poem/24749
Hér að ofan gætir nokkurs misskilnings um bragfræði. Skal hann nú leiðréttur. Í stuttu máli er svarið við spurningunni: Nei. Vísan er ekki rétt. En förum yfir vísuna, línu fyrir línu. Sér hún hann og segir vá./b] Þessi lína er hárrétt. Stuðlarnir eru S. H-in gætu ekki myndað stuðla í þessari línu. Engin ofstuðlun. Svo hár hennar hann strók. Þessa línu vantar höfuðstaf á móti stuðlunum í fyrstu línu. Höfuðstafur verður að vera á fyrsta áhersluatkvæði línunnar, en til að S-ið í „Svo“ geti...
Þetta eru glæsilega kveðnar ferskeytlur - hrós á þig! Mér finnst sú fyrsta best. Unun er, hve ljúft og létt ljóða- hagar -seglum. Þessi kann að kveða rétt kúnstar- eftir -reglum.
Þetta er semsagt ekki ferskeytla. Í ferskeytlu eru rímorð 1. og 3. línu eitt atkvæði, en ekki tvö eins og í húsið og búsið. Það þyrfti því að ráðast í viðameiri breytingar til að smíða rétta ferskeytlu úr þessum efnisviði. Sjá svarið við athugasemd Fimbulfambs.
Reyndar eru stuðlarnir á áhersluatkvæðum, eins og vera ber. Þetta er þó háð því að ljóðið sé lesið rétt - þetta er ekki ferskeyttur háttur, heldur þríliðaður og hver hending (lína) þríkvæð (með þrjár kveður). Takturinn við lesturinn verður þá ekki ósvipaður valsi. Vissulega er ekkert mjög fallegt að láta “húsið” í orðinu “eldhúsið” ríma kvenrími, enda áherslan þá komin á annað atkvæði orðsins en ekki hið fyrsta eins og almennt gerist í tungumálinu. Það er þó nauðsynlegt, vilji höfundur...
Tek sérstaklega undir þessa leti, ef svo mætti kalla, hjá fólki að nenna ekki að beygja sagnir. Fólk reynir þá að koma hverri einustu sögn sem það notar í nafnhátt (t.d.: Ég er ekki að skilja þetta) þrátt fyrir að mun einfaldara og fallegra væri að beygja sögnina (t.d.: Ég skil þetta ekki).
Gott framtak og þörf ábending. Við þurfum sífellt að standa á varðbergi varðandi tungumálið, sérstaklega nú á tímum gegndarlausrar tæknivæðingar. Internetið hefur marga ókosti og einn af þeim er sá, að það dælir óvönduðu ritmáli inn á hvert heimili í tonnavís daglega. Áður fyrr var flest ritað mál vandað og gott. Nú er flest ritað mál í formi bloggs eða óvandaðra textabrota á huga.is, ritað af fáráðlingum sem apa heimskuna hver eftir öðrum. Tungumálið okkar ylhýra stefnir, einkum vegna...
Nei nei, þetta er alls ekkert hræðilega asnalegt, mun betra en margt sem hérna sést. Þó erfitt sé reyndar að gera mér til geðs með óhefðbundnum kveðskap. Hins vegar vil ég hrósa þér sérstaklega fyrir nafnið þitt. Alltaf gaman að sjá fólk skrifa reglustriku með erri, leiðinlega algengt finnst mér að sjá fólk skrifa og jafnvel segja “reglustika”.
Mér þykir leitt að benda þér á það (þú sérð náttúrulega ekki bakið á þér sjálfur) en tattúgaurinn hefur óvart tattúað þetta með spegilskrift, sem er auðvitað ákveðinn bömmer.
Glæsilegt framtak, gaman að sjá viðleitni til hefðbundinnar ljóðasköpunar. Hún er allt of óalgeng á þessum síðustu og verstu tímum. Ljóðið finnst mér gott, þrátt fyrir nokkra bragfræðihnökra eins og hæstvirtur T-Kex bendir á. Ég ætla hins vegar að leyfa mér að gerast svo kræfur að mótmæla ræðu meistarans að nokkru leyti og bæta e-u við. T-Kex segir að í fimm bragliða frumlínum eins og í þínu ljóði þurfi annar stuðullinn að standa í þriðju kveðu. Þetta er ekki alveg rétt, þar sem stuðlar mega...
Ég tek í sama streng og T-Kex. Þegar ég ennþá var ungur, óvitagrallarapungur, nennti ég ekkert að yrkja - því ómögulegt var að virkja vitið til andlegra verka - ég var ei í ætt við hinn merka listamann anda og orða - og orða- ég hafð'engan -forða.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..