Góð spurning, ég hafði í rauninni ekki hugsað út í þetta, enda gerði ég mér veikar vonir um að nokkur ætti eftir að nenna að pæla í þessu. Rétt í þessu rak ég nefið í fyrsta skipti inn á myndlistaráhugamálið hér á Huga og gerði mér þá ljóst að til eru Hugarar sem hafa afburðarhæfileika á sviði myndlistar. Því datt mér í hug að auglýsa keppnina þar og jafnvel í samstarfi við stjórnendur þess vefsvæðis. Hef ég þegar sent hæstvirtum stjórnanda /myndlist, Pirr, erindi þar að lútandi og vænti...