Framarar héldu sér uppi á markatölu í fyrra, en þeir eru nú búnir að ná sér í tvo Króata, en á móti því kemur að Sigurvin Ólafsson er farinn yfir til KR-inga.
Sjálfur er ég harður KR-ingur og spái þeim sigur í deildinni, eins og ævinlega. Varðandi Framara þá tel ég þá ekki eiga mikla möguleika, allra síst á Íslandsmeistaratitli.
Þarna er illa talað um góðan knattspyrnumann. Gummi hefur sannarlega unnið fyrir launum sínum í sumar og hann er frábær knattspyrnumaður í alla staði. Ég ætla bara að vona að hann fari ekki til íslensks liðs, enda getur það varla verið. Ef KR hefur ekki efni á að greiða honum þau laun sem hann vil, þá hefur ekkert lið efni á því.
Þú hefur ekki leitað nægilega vel á heimasíðu KR, en á forsíðunni geturðu farið inn á KR-boltann, og þar sérðu væntanlega þessa grein. Annars bendi ég þér og ykkur öllum á nýjasta tbl. KR-boltans, bls. 4.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..