Hún skal bera hendur tvær, höku, nef og kinnar. Góðleg augu - græn og skær og geirvörturnar stinnar. Varla má hún vera hlass. Vel skal hún sig bera. Falleg brjóst og flottur rass finnst mér nauðsyn vera. Hún skal vera væn og góð og verkum sinna heima. Í rúminu þó alveg óð! Um það læt mig dreyma. Skal hún vera skemmtileg, um skondna læki fljóta. Og ofurlítið lægri en ég. Og lífsins skal hún njóta. Alltaf hress, en aldrei fúl hún engu nennir tuði. Hún skal vera heit og kúl, hún er æ í stuði....