Draumkennt ástand, dafnar sál,
drykkur niður rennur.
Kviknar hugsun, kveikir bál
koldimmt hjarta brennur.

Falin hugsun, fögur mynd
feigur maður, kona.
Dofin minning, dauðasynd,
dæmd er til að vona.

Leitar annað, leysir hug,
löngun burtu heldur.
Haminn kraftur, hugarflug,
heitur falinn eldur.
We're all mad here