Sef hjá því mér leiðist
þeir svíkja mig, ég reiðist
þegar þeir hringja ekki ég vil þá
bara pínu stund smá
vil fá að vita hvað sé að frétta
gerði ég ekki allt það rétta

Svo hitti ég þennann flotta gaur
hann er svo fyndinn samt staur
hann veit hvernig á að heilla mann
öll réttu trikkin kann
Rappar syngur og dansar
hreinlega ekki stansar

Missi mátt og matarlist
sefnleysi, því hann gat ekki gist
söknuður, djöfull er ég pist
hvort okkar ætli hringi fyrst

þetta er svo heimskur leikur
virkilega sjúkur og veikur
þetta er ljúft ég svíf
daginn eftir, réttu mér hníf
ekki handa mér heldur fyrir hann
sem ætti að senda í stelpubann

Ljúfsár helvítis höfnun
svo það liggur við köfnun
og hjartað að springa
því hann neitar að hringja

Dring dring og ég hendist í símann
er hress og skiptir engu með tímann
ég pressa og spyr hvað hann sé að meina
vill hann samband, hvað er hann að reyna?
Þá segir hann mér hann sé fjörtíu og þriggja
ætlar þú 24 ára framtíð á því að byggja

En þú þóttist vera 30 ára gamall
það var því ég vildi ekki vera einsamall
Ég laug ekki, þú bara ekki spurðir
þvílíkir leikara tilburðir
En þú lítur ekki út fyrir að vera útruninn
nú er ég gjörsamlega útbruninn

Svo ég sný vörn í sókn og segji
ég er 18 ára, sannleikann teygji
hann á það víst skilið
að ég brúi en frekar bilið
hann er hissa og útskýrir
að ég væri 18 ára sá hann ekki fyrir

Ég segji djók nú veistu hvernig er
að láta fokking ljúga að sér
Hann segir konur á sínum aldri gamlar
þó hefði verið 18 það honum ekki hamlar
Hann segist vera ungur í anda
það komi honum oft í vanda

Svo lætur hann allt flakka
hann á 4 barnsmæður og 4 krakka
Það styttist í hann verði afi
allt í hausnum á mér er á kafi
samt finnst mér hann frábær
og fjarri því elliær

Svo vill hann fara að hittast á ný
og ég læt alltaf eins og skítamý
vinkona mín segir pabbi er á sama aldri
og slær mig í framan með tusku kaldri