Mín fyrsta tilraun til sléttubanda, í tilefni þessa dásamlega vorhrets. Ef einhver hagyrðingur vill koma með lagfæringar og athugasemdir er það vel þegið. 

Vorhret
Frostið bítur, napurt næðir, 
nýstir, spörfugl grætur
Brostið, kulnað hjartað hræðir 
hríðin, dimmar nætur

Nætur dimmar, hríðin hræðir, 
hjartað kulnað, brostið
Grætur spörfugl, nýstir, næðir,
napurt bítur frostið
We're all mad here