Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

stakka
stakka Notandi frá fornöld 1.086 stig

Árans púki (5 álit)

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það veitir greinilega ekkert að því að leikmaður sem ég er, skrifi loks grein um BG á BG áhugamálinu. Þannig er að ég fékk lánaðan þennan leik númer eitt og er búinn að hanga í honum mér til dundurs. En nú er svo komið að ég sit fastur á einhverjum djöfli í Ulgoths Beard. Þannig er að ég get klárað hann þegar að ég vill því að ég er kominn með grænt leyfi á Sarevok, en ég er með fíkn í betri vopn og verð hreinlega að fá einhver betri vopn ;) Ég er búinn með Durlags tower og fékk þar hníf að...

Hyundai Coupe orðinn að sportbíl? (65 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hyundai. Í gegnum tíðina hafa þessir bílar fengið mjög slæma dóma og þá sérstaklega frá almenningi. Hyundai hefur verið settur í hóp með Lödu og gamla skódanum, en þessir bílar hafa yfirhöfuð verið víti til varnaðar fyrir bílakaupendur. Hönnun Hyundai bílana hafa hingað til ekki verið frammúrstefnulegar. Scoupe hönnunin hefur kannski verið umdeildust af hönnunum þeirra undanfarið. Sportbílar þeirra hingað til hafa verið hverfandi markaður Gti bílana. En nú er sagan önnur, Nýja kynslóð Coupe...

The new Spyker (11 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Jæja eftir góðan kafla af skoðanaskiptum þá fékk maður þessa snilld í andlitið og vil ég þakka partytruck fyrir að benda mér á þennan einstaka bíl. Árið 1898 bjuggu Jacobus og Hendrik-Jan Spiker til sinn fyrsta Benzmotor drifna bíl og fengu strax athygli á flugvélalagaðri hönnun bílsins. Árið 1903 bjuggu þeir svo til fyrsta fjórhjóladrofna Grand Prix keppnisbílinn sinn. Sem var fyrsti fjórhjóladrifni og sex sílendra bíllinn í heiminum. Auk þess að byggja flugvélar og setja hraðamet á THE...

Frægasta "leikkona" sögunnar. (21 álit)

í Bílar fyrir 22 árum
Við erum að tala um ekki ófrægari leikkonu en Eleanor 1973 Mach 1 Mustang. Engin aðalleikkona hefur þurft að þola svo öfgafulla og hrottalega meðferð, 250 stundir þurfti til að gera hana tilbúna fyrir myndavélar. Því að það þurfti meira en förðun til að gera hana tilbúna fyrir aðalhlutverkið. Ytra boddíið var tekið til þess að veltigrind gæti komið í kringum ramma hennar, á stuðara, inní skottið, undir þakið og bakvið sætin. Gírkassinn var keðjaður við og sveigjanleg myndavél látin í...

Meðgangan (26 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þegar að kærastan mín gékk í gegnum meðgönguna þá þurfti hún alltaf að vera að æla. Nánast eftir hverja máltíð og hún þurfti sérstaklega að passa hvað hún lét ofan í sig. Því hún kúgaðist meira af öðru en hinu. Pizzur voru útúr sögunni hjá henni vegna brjóstsviða. Mataræði hennar fyrstu mánuðina var það að hún varð maniac í appelsínusafa. Svo fékk mín leið á því og fékk maníu í Ís. En hitt sem hún var að borða fór eiginlega allt upp aftur. Við fórum í mæðraskoðun og seinna kemur fram að hún...

Reynsluakstur (34 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég var núna að keyra nýju Micruna og get alveg fullvissað fólk um að þó að þessi bíll sé ekki augnayndi þá er hann einn besti hatchback sem ég hef prufað. Þessi er sjálfskiptur og er þó að virka alveg ágætlega en þá miðað við innanbæjar akstur. Hann er djöfull góður í snattið sprækur og beygjir vel. Ef ég ætti að velja á milli hans og Yaris þá tek ég Micru. Það er aðeins meiri snerpa í honum og eitt sem er skrítið að þegar að ég hætti að gefa í þá kemur svona psssssss, úr vélinni engu líkara...

Ford GT40 aftur í framleiðslu. (8 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ford íhugar nú að láta þennan fornfræga kappakstursbíl aftur í framleiðslu. Gamli GT40 dró nafn sitt af 40 tommu hæð bílsins en þessi er 4 tommum hærri. Hann lítur eiginlega ekkert út eins og gamli GT40. En gamli GT40 einokaði Le mans kappaksturinn 1966, 67, 68, 69.Ford sýndi nýja bílinn í North American International Auto Show í Detroit í janúar. Þeir láta þennan bíl á markað árið 2003 en þá á Ford 100 ára afmæli. En þess má geta að gamli bíllinn kom rétt yfir 100 úr verksmiðjunni....

Stórir fólksbílar. (62 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Eitt sem er alveg óskiljanlegt er þegar að fólk kaupir sér jeppa með þá hugmynd í hausnum að geta notað hann til að fara útí sumarbústaðinn á veturna. Og þá verða þau að vera á jeppa sem er upphækkaður á 38 til 44 tommur. Síðan fer þetta fólk voðalega lítið útá land og stundar þessvegna bæinn og iðkar eðlilegt líf. En hvað með okkur þegar að þau fara í búðir og taka 2 stæði. Síðan keyra þau á götunum og fara þá aðeins útá hina akreinina þannig að það er mun erfiðara að fara frammúr. Ég tala...

Veturinn (16 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Þegar að þið eruð að gera ykkur tilbúin til að keyra og það er snjór á bílnum. Enga leti skafa af rúðum þaki og húddi. Klaki af húddi fer á framrúðuna og þú þarft að sjá út. Klaki á þaki fer á framrúðuna og getur fokið líka á bílinn fyrir aftan. Þetta allt skapar hættu. Vegalengd milli bíla á að vera meiri ég þarf ekki að segja ykkur það. Munið 1003 reglan hafið það 1006 eða 1009 þið dæmið. Þurrkublöð takið klakan, ef hún er með klaka þá þurrkar hún ekki nógu vel. Þrýfið þurrkublöðin...

Er betra að eiga nýjan bíl?? (34 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Já það er alltaf spursmál því að þjónustan er líka vafasöm. Maður gæti allt eins eytt peningum í viðgerð eins og að kasta þeim í vasa umboðanna til þess að segja manni að bíllinn sé í lagi og haldi þar með áfram í ábyrgð. Svo er það líka það. Öll umboðin gera það að þegja á upplýsingum frá verksmiðjum með galla á bílum. Svo sem gírkassi á VW og Skoda, loftinntakið fræga á 406 svo að eitthvað sé nefnt. Ég ætla að segja þér sögu sem er sönn þannig er. Maður kaupir sér Skoda nýjan í dag er hann...

Ventill í pústið. (10 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég ætla að skrifa um svolítið skemmtilegan hlut en það er ventill sem fer utan við innspýtinguna og þrýstir þá meira lofti inná hana. Hann verkar á þrjá mismunandi vegu. Hann myndar ef við segjum “andvara” á lágum snúning, á milli snúning myndar hann “blástur” og á háum snúning kemur hvirfill. Mörg bílablöð hafa lofsamað þennan grip fyrir að vera ódýr og hann virkar. Fyrir þá sem er nokk góðir í bílamálum er ekkert mál fyrir þá að fitta þetta en fyrir okkur hina þá er betra að ráðfæra sér...

Innbrot í bíla, hugsunarháttur og sálfræði. (27 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
líðan eftir innbrot: Þegar að það er brotist inní bílinn þinn þá kemur þessi ógeðfellda tilfinning að þér hafi sama sem verið nauðgað, þú fyllist óöryggi og paranoiu. Þetta er víst sama tilfinning og ef að það væri brotist inní íbúðina þína og raftækjum stolið á meðan að þú værir sofandi. Fyrirbyggjandi aðgerðir: Hafa bílinn alltaf læstan, hafa hann í góðri birtu og gott útsýni að honum. Taka frontinn ekki vera með box eða festa boxið kyrfilega, því að tíminn vinnur gegn þeim. Þjófavörn er...

Charlton (8 álit)

í Manager leikir fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þetta lið er næstum sorglegt þú byrjar með mannskap sem gæti sómað sig ágætlega í þriðjudeild. En til að nýta mannskapinn sem best er að finna gullið innan um kolið. Bagheri og kinsella eru möst, það sem að ég komst að er að byggja liðið uppá miðjumönnunum. Þú ert með ágæta miðju, þannig að þrír í vörn Rufus, Tiler og Todd. Ég keypti Kámark. þannig að Tiler fór bara á bekkinn. Robinson er fínn vinstri vængur en enginn fínn hægri kantur. Minns fór að leita og fann Ibrahim Ba (free transfer)...

Hægt mjög hægt. (17 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég á PII 450, 128, Ati rage 8 mb 5gb harðan disk. 12 hraða drif og leikurinn er maximum install. En nei nei hann virkaði alltaf fínt ekkert hægt eða neitt svoleiðis og svo fær maður sér expansion og þegar að maður fór á móti “þeim þremur” sem gæta inngangs inní worldstone chamber. Þá var maður með 3 úlfa, 3 krákur, orm, spirit og mage (sem maður fékk úr amazone borðinu.) Heyrðu þetta var svo ógeðslega hægt að þetta var varla möguleiki að klára. Meira að segja þegar að þeir voru búnir að...

Druid (21 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég hef verið að leika mér með druid og það sem ég get sagt um hann er nánast ekkert nema gott. Eiginleikar hans eru svolítið öðruvísi það er að spila hann sem nokkrar týpur magical, fighting, vörn etc. Ég er með hann meira magical það er að láta mikið af punktum í mana og life, frekar en strenght. En samt læt ég þar eitthvað til að breikka heildina. Þannig að ég er að byggja minn upp sem svona alhliða en, er það rétt á ég ekki að byggja hann mest upp sem annaðhvort það sem ég er að segja...

Upptjúnnaður Lancer Evo (49 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þetta er gaman að sjá, þar sem að ég er mikill Lancer fan og rakst á þennan öfga, ofur, Ultra og súpertjúnnaða Lancer Evo. Sem er hvorki meira né minna er 580 hestöfl. Þeir Juku slagrýmið úr 2000 í tæp 2200. Létu aðra túrbínu Trust TD06SH. Trust Prototype Version 2 púst, Þriggja laga intercooler, utaná liggjandi olíukæli. Og 90mm títaníum pústkerfi. Það sem að þeir eru að gera við þennan bíl er einföld snilld, þeir eru búnir að brjóta þarna niður 400 hestafla múrinn og komnir með hann í tæp...

Þeir sem eiga götuna. (25 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hafið þið lent í jeppamönnum og jeppakonum sem finnast þau gjörsamlega eiga götuna. Ég lenti í einum um daginn þar sem að hann tók frammúr mér á Vesturlandsvegi og ekkert meira með það. Á nýju ljósunum, Vesturlandsvegur - Grafarvogur. Dálítið eftir þessi ljós fannst mér þeir fara hægt þannig að ég gaf í og tók frammúr honum og hann flautar, á ljósunum inná Suðurlandsveg liggur hann á flautunni. Ég var orðinn mjög pirraður og þið skuluð ekki taka mig til fyrirmyndar þannig að ég bíð eftir...

"vinir bílsins"? (31 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þegar ég heyri þetta og pæli svo í auglýsingunni, sem ég sá í einhverju blaði þá hugsa ég að þeir ættu fremur að titla sig óvinir bílsins. Vegna þess að vinir standa saman í gegnum blíðu og stríðu. Og ef að þú og bíllinn þinn eruð vinir að þá munt þú hugsa um bílinn þinn og hann mun vera góður við þig. Ég vil hafa bílana mína með reynslu og persónuleika, einnig eru þeir ódýrari kostur og að þeir eyði meiru. Það fer eftir módelum og vélatstærð. t.d. átti ég Swift sem eyddi undir 4 lítrum á...

Skemmdir á bílum. (30 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég sá á NBC (sem var sýnt á skjá einum.) Að þá voru þeir með þátt þar sem að tryggingarfélögin voru með prófanir á skemmdum á bílum miðað við 5 kílómetra hraða. Þeir voru að athuga stuðara á bílum og hvernig þeir urðu gangvart keyrslu á svona litlum hraða. Þeir bílar sem ég man eftir sem voru þarna voru Hyundai Accent, dodge caravan limited, M.benz CLK 320 og Lexus sem kostaði 50000 dali. hvort að Focus hafi bara ekki verið þarna líka. Meira um prófanir. Sem sagt það sem tryggingarfélögin...

Breytingar á bílum. (17 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég var að lesa hérna á korknum um andúð á breytingum á bílum. Eins og einn sagði, ef þeir hafa það ekki slepptu því. Þessu er ég persónulega algjörlega mótfallin því að það er bara allt of mikið af bílum sem eru eins og finnst mér gaman að sjá þegar að fólk tekur sig til og breytir þeim. Þetta stuðlar af meiri persónuleika í umferð og gleður augað. Þið hafið örugglega tekið eftir vínrauðum Subaru impreza sem ég held að sé með 1800 vél. Þessi náungi hefur gert svoldið fyrir þennan bíl og að...

GT3 gallaður? (23 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég og vinur minn tókum á leigu ps2 og GT3 leikinn og ég get sko alveg sagt það fyrir mína parta að GT2 er betri, ekki flottari en betri. Málið er að í gt2 eru fleiri bílar til að velja úr og þau mistök sem þeir gera með Gt3 er að splitta honum ekki í 2 diska, þannig að það rúmast u.þ.b. 650 meg á geisladisk og þessi megabæt fara í betri hlóð og betri grafík aðeins fleiri brautir á kostnað færri bíla. :( Þetta finnst mér sorglegt og geta ekki keypt gamla ameríska dreka er líka ekki nógu gott....

Gamlir bílar (31 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mér finnst allir í dag vera að pæla í einhverjum óraunhæfum ofurbíl. Er engin þarna úti sem er með einskæran áhuga á gömlum viðráðanlegum ofurbílum. Svo sem Chevy. SS camaro eða Corvettu. Ef við pælum í kostum þá eru þetta talsvert ódýrari bílar með meiri getu en nær allir þessara nýju bíla, flottara hljóð, þola að reyka og ef þú flytur fornbíl inn þá losnarðu við þungaskatt á bílnum. Ég er talsvert mikið á rúntinum og þá sér maður þessa subaró útúrtjúnaða bíla og einstaka sinnum (þó oftar á...

Lögreglan og tækin. (43 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mig langar bara að koma því aðeins á framfæri og jafnvel spyrja ykkur útí tæki lögreglunnar. Við vitum að þeir eru á volvo 850 2.0 vél sem að margir 1.6 bílar geta stungið hana af. Síðan eru þessir mmc spacewagon. (hvað eru þeir öflugir?) Econoline sem að er víst með ágætis vél. Og Galant V6 24 ventla sem er 170 hestöfl með beinskipti eiginleikum. Og síðast en ekki síst það sem maður óttast mest Subaru impreza turbo, sem að löggurnar á Selfossi eru með, 218 hestöfl. Ég gleymdi eiginlega...

Einokun á vinstri. (16 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mig langar að varpa því fram. Fyrst að lögreglan er að gera herör á “ökuníðinga” með því að hækka sektir og “bæta” þar með umferðarmenninguna. Afhverju getur hún þá ekki bætt hana fullkomlega og sektað fólk fyrir að aka á sama hraða á vinstri eins og umferðin gerir á hægri. Í mínu höfði er sú hugmynd að þetta fólk skapi mikla hættu í umferðinni og valdi óþarfa áhættu við frammúrakstur. Einokun á vinstri gegnir líka því kvimleiða hlutverki að teppa fyrir allri umferð á þessari akrein og þá...

hæ hó jibbí jei það er kominn 17 júní (11 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nú öðlaðist 17 júní nýja merkingu hjá mér því að klukkan 10:12 varð ég pabbi, 14 merka strákur og mikið ógeðslega varð ég montinn. Þessi tilfinning er alveg ólýsanleg því að það eru svo margar tilfinningar þarna í einu en á einu augnabliki gat ég sagt við sjálfan mig að ég skildi ekki hvernig ég hef getað lifað án þess í gegnum tíðina og mínir hagsmunir skipti engu lengur. Og ég skil loksins foreldra núna og hvernig þeir geti nánast fórnað sér fyrir börnin það er bara svo ótrúleg ást þarna í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok