Ford GT40 aftur í framleiðslu. Ford íhugar nú að láta þennan fornfræga kappakstursbíl aftur í framleiðslu. Gamli GT40 dró nafn sitt af 40 tommu hæð bílsins en þessi er 4 tommum hærri. Hann lítur eiginlega ekkert út eins og gamli GT40. En gamli GT40 einokaði Le mans kappaksturinn 1966, 67, 68, 69.Ford sýndi nýja bílinn í North American International Auto Show í Detroit í janúar. Þeir láta þennan bíl á markað árið 2003 en þá á Ford 100 ára afmæli. En þess má geta að gamli bíllinn kom rétt yfir 100 úr verksmiðjunni.

5.4-lítra V8 með supercharger er það eina pottþetta við þennan bíl, síðar á eftir að koma í ljós hvaða aðrir hlutir verða í bílnum. En þessi vél er að pumpa út 500 hestum og toga 500 lbs.-ft. Samansetta boddíið er á álgrind og innréttingin mun halda svlítið í race útlitið.

Varðandi framhaldið um þennan bíl þá mun Ford ekki tjá sig um öll spilin fyrr en tímar líða.

Svo er það spurning mun Ford láta reyna á að setja þennan bíl í Le mans og reyna að endurheimta titillinn. Ég því miður komst ekki inná leitarsíður til að bera þennan bíl saman við Jagúarinn og Porschinn sem dæmi.

Annars hef ég grun um þennan tvegjja sæta sportbíl, að hann fari frekar í sölu en einhverja keppni.