Mig langar bara að koma því aðeins á framfæri og jafnvel spyrja ykkur útí tæki lögreglunnar. Við vitum að þeir eru á volvo 850 2.0 vél sem að margir 1.6 bílar geta stungið hana af. Síðan eru þessir mmc spacewagon. (hvað eru þeir öflugir?) Econoline sem að er víst með ágætis vél. Og Galant V6 24 ventla sem er 170 hestöfl með beinskipti eiginleikum. Og síðast en ekki síst það sem maður óttast mest Subaru impreza turbo, sem að löggurnar á Selfossi eru með, 218 hestöfl. Ég gleymdi eiginlega alveg Opel vectra 2.0 sem að minn 1600 tekur auðveldlega. En spáum nú í hinum köggunum þessum átta cylendra og allar ofurbreyttu subaróar imprezur turbo.

Hvaða löggubíll á að hafa í þá.
Og ef þið hafið einhverjar tölur um mótorhjól lögreglunnar.