Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Vísindafrík, afsannið þetta

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hún hefur sennilega sterka eðlisávísun og hefur fundið þetta á sér. Þessi sýn er framkölluð í höfðinu á henni, en það þýðir ekki að hún hafi ekki ástæðu til að taka mark á henni. Sumir eru skynugri en aðrir. Svona hlutir koma fyrir fullkomlega heilbrigt fólk og eru eðlilegir. Mannsheilinn er flókið fyrirbæri, og vísindin hafa aðeins rannsakað toppinn á ísjakanum hvað hann varðar.

Re: Vangaveltur um Tík Pólí.

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég er frekar skeptískur á þetta technocracy. Völd í höndum sérfræðinga? Það yrðu þá að vera lítil völd á þeirra sérsviði, heterarchy í stað hierarchy. En hvernig á að integrera litlu valdaeiningarnar svo að þær vinni vel saman? Þetta yrði hugsanlega til þess að allir misstu endanlega sjónar á heildarmyndinni, enginn sæi út fyrir sitt afmarkaða svið, allt drukknaði í skriffinsku. Eða hvað? Kannski er þetta svo sem ekkert verra en skrípaleikurinn sem er leikinn núna. Því minni völd sem hver...

Re: Kannabis samsærið!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvað er að fólki? Af hverju geta menn ekki tekið ábyrgð á eigin lífi? Það er alveg eins mikil ef ekki miklu verri misnotkun sem fer fram á læknadópi ýmiss konar á hverjum degi. Hófsöm notkun á kannabis er ekki misnotkun frekar en hófsöm notkun á áfengi er misnotkun. Er búð að heilþvo Íslendinga? Er forræðishyggja búin að tröllríða öllu?

Re: Skrýtið???

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég þoldi ekki sögu í menntaskóla, en hef núna áhuga á að bæta upp fyrir það. Mér finnst þó miklu skemmtilegra að pæla í sögu hugmynda, trúarbragða, menningar, tíðaranda og svol. frekar en sögu stríða og landavinninga. Svona er fólk bara mismunandi.

Re: Kannabis samsærið!!!

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mjög góð grein.

Re: Ungar stúlkar í leit að fyrirsætustörfum í USA

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fínt hjá henni. Af hverju má hún ekki gera það sem hún vill ef hún er með fólk til að bakka sig upp? Af hverju má hún ekki láta draum rætast ef hún hefur tækifæri til þess? Ef þetta gerir hana hamingjusama er það hennar mál. Ertu kannski öfundsjúkur? Hún getur alltaf snúið til baka í menntaskóla og normal líf ef þetta gengur ekki upp. Mind your own business.

Re: Hryðjuverkamenn

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
ha ha ha , þið eruð nú meiri bullukarlarnir!

Re: Of mikið af Skyggnum ?!?!

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held að fólk sé svolítið að taka hlutina of bókstaflega. Það er kannski að reykja hass, fær einhverjar undarlegar skynjanir og frumlegar hugmyndir og heldur að það séu yfirnáttúruleg skilaboð, í stað þess að túlka þetta sem það sem þetta er, ofskynjanir. Þó þetta séu ofskynjanir þýðir það ekki að það geti ekki verið vit í þeim, en þetta kemur að innan, ekki að utan. Sumir eru kannski “næmari” en aðrir og fá alls konar skynjanir án þess að vera undir einhverjum áhrifum. Einhverjir þeirra...

Re: áhugavert hjá indjánum

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú ert nú svolítið hjátrúaður og paranoid held ég. Hvernig væri að skýra aðeins betur þessa talnaspeki þína? Er þetta kabbalah? Pýramídafræði einhvers staðar af netinu? Opinberanir að ofan/neðan/innan? Ranghugmyndir brjálaðs manns? Við er engu nær.

Re: Spendýrafæðing.

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jú jú, auðvitað eiga börnin að fá að njóta trúfrelsis og frelsis undan trú :) Ég bara velti sjálfur fyrir mér hvaða siðferðislegu gildi maður eigi að brýna fyrir barninu þegar/ef það kemur að því að maður eignist slíkt. Það væri sennilega bara gaman að ala upp víðsýnan póstmódernískan anarkista, öfugt við íhaldssamt uppeldi manns sjálfs. En svo eru stelpurnar (margar) svo mikið fyrir hefðir, kirkjur, brúðkaup og skírnir og svoleiðis, það er víst svo rómó. Ég vil ekki leggja það á neina...

Re: Japonijazz í Salnum í Kópavogi

í Jazz og blús fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég hafði sömu tilfinningu um þessa tónleika. Voða fínt og gaman að sjá hvað þeir skemmtu sér við að spila, vel spilað, fallegir textar…En þessi fjöruga latin salsa tónlist átti miklu frekar heima á einhverjum sveittum dansstað, og er ekki minn tebolli.

Re: Spendýrafæðing.

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Til hamingju! Já konurnar eiga skilið meira hrós og meiri virðingu. Hvar á svo að skíra? ;)

Re: Grein Kasparovs um 11 Sept. og hry𪵶erk , Nr.1

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Já þetta er athyglisvert. Hver er pælingin hjá þessum orþodoxum, á ekki að flytja til Ísrael fyrr en messíasinn er kominn og allar þjóðir sameinast í trú á G-ð? Þeir vilja sem sagt halda áfram að vera í útlegðinni þangað til þeim er rétt Ísrael á silfurfati. Er það ekki frekar vonlaust markmið? Er þetta ekki bara svipað og Jews for Jesus, andstæðingar gyðingdóms að sigla undir fölsku flaggi?

Re: Afhverju erum við hér

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
En ertu endilega viss um að þú eigir þína sjálfsvitund? Ertu ekki bara afurð hugmyndanna allt í kringum þig sem mata þig og móta þig? Ég er meðvitaður um það að í hvert skipti sem ég tjái einhverja skoðun er ég að viðurkenna einn raunveruleika, eitt sjónarhorn, og útiloka marga aðra. Tungumálið takmarkar líka þær hugmyndir sem við erum fær um að koma upp með, dregur okkur ósjálfrátt í dilka þar sem við viljum ekki endilega vera. Ég hélt einu sinni að ég væri vinstrisinnaður, svo hélt að ég...

Re: 11. sept hvað?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Eru þetta ekki bara sömu hálfvitarnir og trúa falsritinu Protocols of The Learned Elders of Zion og öllum þessum bull Talmúðs tilvitnunum sem ælt er út um allt netið? Vesturlandahatarar, viljið þið ekki bara segja okkur næst að gyðingar séu í raun shapeshifting eðlur frá plánetunni Síríus sem stjórni okkur með hjálp Frímúraranna? Horfist í augu við það, þið eruð á leið inn í göng sjúklegrar paranoiu. Vandinn er fyrst og fremst hjá ykkur sjálfum og þið munuð nota allar þær “staðreyndir” sem...

Re: IRC-Kvöld?

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvernig er það, eru heimspekingar ekkert að skemmta sér á föstudagskvöldum? Eða a.m.k. að gera eitthvað meira social en að vera á irkinu? Ég var alla vega í partýi í gær og var líka búinn að steingleyma þessu. Hvað með að hafa þetta á sunnudagskvöldi?

Re: Mennigarnótt..

í Danstónlist fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hef heyrt að þetta hafi verið Kári í dulbúningi, en sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Re: Táknmynd

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þetta er ekkert orðið þreytt. Hvað hefur gerst stórt í heimsmálunum undanfarið sem tengist ekki þessu á einn eða annan hátt. John Lennon undirskriftin er hins vegar orðin þreytt, sem og vælið um eitthvað gullaldaráhugamál. Af hverju geturðu ekki bara fjallað um þessa hippatónlist undir rokkáhugamálinu?

Re: Hvers vegna er kannabis ólöglegt?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er bara verið að tala um kannabis hérna, ekki amfetamín og önnur ofbeldislyf. Flestallt ofbeldi á Íslandi er framið af fólki undir áhrifum af áfengi. Af hverju eigum eitthvað frekar að borga spítalakostnað fyrir sígarettureykingamenn? Alvarlegir talsmenn lögleiðingar (þ.e. frjálshyggjumenn, ekki Kristjaníukrakkarnir hérna sem kunna ekki að skrifa) eru oft meðmæltir einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar. Þetta krefst auðvitað meiri ábyrgðar af einstaklingnum, sem er bara gott. Hann ræður...

Re: 11. sept hvað?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér sýnist þú nú eiga erfitt yfirleitt með að hugsa heila setningu á íslensku.

Re: Svar til Ramax

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jú ég er sammála þessu síðasta sem þú sagðir.

Re: 11. sept hvað?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
andsk… það átti að koma mynd. Kíktu á þetta: http://chgs.hispeed.com/Histories__Narratives__Documen/ Minnesotans_and_The_Holocaust/Scenes/scenes.html

Re: 11. sept hvað?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Smá upprifjun á nasisma.

Re: Varðandi svör við greinum og korkum á Dulspeki.

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvaða hvaða. Dulspekiiðkendur hljóta að þola gagnrýni eins og aðrir. Þú ætlar þó ekki að skerða málfrelsi hérna? Btw, hefurðu prófað að segja geðlækni frá dulrænni reynslu? Á tungumáli geðlækna heitir allt slíkt “ranghugmyndir”. Mér persónulega finnst ekkert athugavert við dulspeki og alls kyns kukl og galdra, það er vitað mál að margt af því skilar árangri. En þegar fólk trúir því að um utanaðkomandi öfl sé að ræða, að það sé ekki bara að kveikja á duldum stöðvum í heilanum, þá má það fara...

Re: Grein Kasparovs um 11 Sept. og hryðjuverk , Nr.1

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvaðan færðu það að orthodox gyðingar séu á móti síonisma? Þú virðist gera ráð fyrir að síonismi sé í eðli sínu slæmur. Það er afar erfitt að vera gyðingur og telja sig ekki eiga taugar til Ísrael, hvort sem maður býr þar eða annars staðar. Gyðingar eru þjóð frekar en kynþáttur (látum trúna liggja á milli hluta), og þjóðir eiga sér oftast heimaland. Hvort Ísrael er landfræðilega landið Ísrael eða eitthvað annað land fer þó stundum eftir túlkun hvers og eins. T.d. litu gyðingar í Þýskalandi...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok