Gabbler, það sem getur virst einfalt fyrir suma tekur kannski tíma fyrir aðra að skilja til fulls og sætta sig fyllilega við. Allir verða fyrir mótun umhverfisins, hinir og þessir hafa sagt okkur að þetta eða hitt sé það mikilvægasta í lífinu, tilgangurinn. Kirkjan hefur komið sinni skoðun á framfæri til okkar að það gerist eitthvað mikilvægara eftir lífið, og sama þótt við afneitum þessari skoðun eru margir sem geyma vonarneista (flestir reyndar) um eftirlíf. Það er virkilega erfitt fyrir...