Eins og margir landsmenn hafa eflaust gert, horfði ég á þáttinn Silfur Egils í dag. Egill ræddi áhugaverð málefni, talaði við m.a. um skipulagsmál í Reykjavík og ræddi við Björn og Ingibjörgu um komandi borgarstjórnarslag. Allt gott um það að segja. En svo var kominn í stólinn við hlið Egils Sæmundur nokkur Pálssón, eða Sæmi rokk, og var tilefnið símaviðtal við skákmeistarann Bobby Fischer. Skemmst er frá því að segja, að Bobby Fischer sýndi flestöll einkenni ofsókar- og mikilmennskubrjálaðs...